Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 27. október 2021 kl. 9:00 um Teams.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 20. október lögð fram og samþykkt.

 

  1. COVID, staðan

Rætt um covid stöðuna í dag.  Fram kom hjá ÞB að augljóst væri að veiran væri á uppleið. Á okkar svæði eru nú 43 í einangrun og 256 í sóttkví.  Nú eru 16 á Akranesi, 6 í Borgarnesi, 17 í Búðardal, 1 á Hvammstanga og 3 í Snæfellsbæ.

Á landsvísu eru nú 777 í einangrun og 1.779 í sóttkví, 7 eru á sjúkrahúsi og 1 á gjörgæslu.

Fjallað var um fund með sóttvarnaryfirvöldum í síðustu viku, fram kom að nú væri búið að taka eina deild á Landspítala aftur undir covid deild, staðan væri því grafalvarleg eins og er.  Þá  var rætt um að verið væri að vinna að endurskipulagninu covid göngudeildar á Landspítala.   ÞB nefndi að áríðandi væri að þessi göngudeild héldi út sömu þjónustu og verið hafi, starfið þar hafi örugglega átt stærsta þáttinn í því hve vel hefur þó gengið hér á landi.

Þá kom fram á fundinum að óbólusettir starfsmenn sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana sem lendi í smitgát þyrftu að fara í sóttkví. Skoða þarf hvort setja eigi einhverjar sérstakar reglur um starfsmenn sem almennt fara ekki í bólusetningar sem taldar eru nauðsynlegar.

 

  1. Símsvari og leiðsögn um næstu skref til þeirra sem hringja í HVE.

Rætt um símsvara og leiðsögn til þerra sem hringja í HVE, en of mikið álag er á síma, sérstaklega á Akranesi vegna fyrirspurna sem hægt er að leysa með heimsókn á vef stofnunar, covid.is eða á heilsuveru.

JFJ og ÁÁ hafa fundað með símaafgreiðslunni og tölvudeild um endurskipulagningu á símsvörun, sérstaklega flokkun símtala með því að innhringiaðilar fái samband við svarvélar sem flokka niður.

Rætt um hvort ekki ætti t.d. að setja upp einn lyfjasíma hjá stofnuninni.  Einnig hvort opna eigi samskipti í heilsuveru. Þá var umræða um símatíma lækna.

JFJ fór yfir upplýsingar á heilsuveru.is, t.d. samskipti við starfsmenn síðunnar, þjónustuvefsjá og fleira.

Ljóst er að setja þarf í gang umbótaverkefni innan HVE hvað þetta varðar.

 

  1. Innsend erindi

 

  1. Álit umboðsmanns Alþingis sem sent var ríkisstofnunum til upplýsingar.

Lagt fram erindi frá umboðsmanni Alþings varðandi frumkvæðismál er varða stigagjöf í ráðningamálum opinberra starfsmanna, dags. 21. október 2021, mál nr. F79/2018.

  1. Spurningar frá Barnaréttarnefndinni um barnasáttmálann.

Lagt fram bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu, dags. 19. október 2021, vegna spurninga frá Barnaréttingarnefndinni um barnasáttmálann,.

Óskað var eftir svörum við eftirfarandi, svörin þurfa að berast fyrir 28. október.

Heimsfaraldur:  Beðið er um upplýsingar um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, til þess að vernda réttindi barna í tengslum við COVID-19 og draga úr neiðkvæðum afleiðingum á börn.

Geðheilsa barna:  Óskað er eftir upplýsingum um ráðstafanir sem gripið hefur verið til vegna versnandi geðheilsu barna.

Innleiðing barnasáttmála:  Hvaða atriði sem varða börn eru talin vera í forgangi þegar kemur að innleiðingu sáttmálans hjá stofnuninni?

Málefnið rætt.

 

  1. Ósk um tilnefningu fulltrúa heilsugæslu/heilbrigðisstofnunar vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

JFJ skoðar málið.

 

  1. Önnur mál.

Rætt var um stöðu mála varðandi starfsmenn og álag, en ljóst er að almennt eru starfsmenn orðnir langþreyttir á álagi vegna þess ástands sem verið hefur.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.