Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. desember 2021 kl. 9:00 um Teams.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 24. nóvember 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. COVID, staðan og bólusetningar

Fjallað um Covid stöðuna og bólusetningarnar.   Á Vesturlandi eru nú 98 með virk smit og 4 á Hólmavík. 195 eru nú í sóttkví á svæðinu. 38 eru með smit á Akranesi og 53 í Grundarfirði, allir þeir sem hafa greinst í Grundarfirði hafa verið komnir í sóttkví, flestir smitin tengjast börnum í foreldra.   Smittölur ganga fremur hægt niður en vonir eru bundnar við að þetta fari að lagast.

Einn sjúklingur greindist með smit á legudeild HVE Akranesi, var á einbýli í sóttkví, viðkomandi er komin á Landspítalann. Búið er að taka hraðpróf af sjúklingum og starfsmönnum og beðið er eftir niðurstöðu PCR prófs.

Rætt um að starfsmenn sæki sér mat upp á deild úr eldhúsi og gæta sérstaklega að sér.

Samkvæmt Covid.is hafa 23,2% íbúa á Vesturlandi sótt sér örvunarskammt.  Alls fóru 200 skammtar á Snæfellsnes í gær og 100 skammtar í dag.  Opin dagur er í Grundarfirði og Ólafsvík. Rúmlega 100 fara í Hólmavík og Búðardal á morgun.   Áætlað er að þann 8. desember verði bólusettir 4.000 á Akranesi og Borgarnesi, 2.400 á Akranesi og 1.600 í Borgarnesi.   Ef magn bóluefna reynist ekki nægjanlegt þá verður þessi fjöldi endurskoðaður, vonir eru bundnar við að nægt magn muni berast samkvæmt áætlun.  Rætt um bólusetningar barna, einhver önnur aðferð verður við blöndun fyrir börn, þau fái líklega 1/3 af skammti m.v. fullorðna.

Fram kom að búið væri að tryggja nægan starfsmannafjölda til að sinna þessum bólusetningum. Nefnt var að sjúkraflutningamenn geti tekið þátt í að sprauta, hafa til þess heimild.  Hefur verið gert á Akranesi.

  1. Staða framkvæmda

Farið yfir stöðu framkvæmda á Akranesi og Stykkishólmi.

Á fundi í gær varðandi A og B deild kom fram að í dag færu tæknimenn HVE inn á A-deildina og hæfu uppsetningar á ýmsum búnaði.  En gert er ráð fyrir að deildin verði tekin í notkun þann 16. desember.

Rætt um hvort B deildin muni flytja á gömlu E deildina þann 17. desember, fram kom hjá ÞBH að tryggja þurfi aukna mönnun, þar sem samlegðaráhrif sem eru nú hverfa.  Umræða var um mögulega innköllun skurðsjúklinga frá 17. desember.   Stefnt er að því að gera eins margar aðgerðir og kostur er til áramóta.

JFJ og ÞBH fóru í Stykkishólm í gær, en þá ver Efla verkfræðistofa að taka út verkið.   JFJ fór yfir teikningar og stöðu mála.  Stefnt var af því að opna sjúkradeildarrými á næstu dögum, en það hafi komið ljós í gær að meira væri eftir en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir, m.a.vantar innréttingar. Þá á eftir að þrífa og bóna dúka.  Fram kom að stefnt verði að því að opna deildina 3. janúar.

Vinna við þriðju skurðstofuna á Akranesi gengur vel fyrir sig og er á áætlun.

  1. Fjárlagafrumvarp 2022

Fjallað um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2022.

Frumvarpið lagt fram.

  1. Mannauðsmál
  • Fram kom hjá ÞB að staða yfirlæknis í Borgarnesi hefur verið auglýst
  • Staða deildarstjóra Heilbrigðisgagnafræðinga hefur verið auglýst.
  • Fengist hefur svæfingahjúkrunarfræðingur til starfa frá 15. janúar í 50% stöðu. Starfið er sett upp til 6 mánaða í fyrstu.
  • Gengið hefur verið frá ráðningu barnalæknis, Erlu Þorvaldsdóttir, á heilsugæsluna á Akranesi í 20% stöðu í stað Guðrúnar sem starfað hefur undanfarin ár.
  • Rætt um verkefni heilsgæslunnar, m.a. fjölskylduteymi, geðheilbrigðisþjónustu fyrir framhaldsskóla og fleira. Ljóst er að ekki verður bætt inn nýjum verkefnum nema sérstakar fjárveitingar fáist.

Tekið verður á móti gjöf frá Oddfellowstúkunni Rebekku hér á Akranesi í dag.   Þá kom fram hjá RM að Lionsklúbburinn Agla ætli að gefa Borgarnesi gjafir að fjárhæð um 200 þús. kr.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.