Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 8. desember 2021 kl. 10:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundurgerð frá 1. desember 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staðan og bólusetningar
Fjallað um Covid stöðuna. ÞB sagði faraldinn á niðurleið, samtals 61 í einangrun og 90 í sóttkví.
12 staðfest tilfelli omíkron afbrigðis eru staðfest. Rætt um smitið sem kom upp á A-deild.
Reglurnar sem birtar voru á verkefnasíðu um Covid fengu umræðu.
Rætt um bólusetningar starfsmanna og hraðpróf og fleira.
ÞBH sagði frá því að nú væri skortur af Pfizer bóluefni og nú stæði til að færa sig yfir í Moderna bóluefni. Þetta er ekki í samræmi við þær tilkynningar sem þeir sem boðaðir hafi verið í bólusetningu. Setur strik í reikninginn þannig að karlmenn undir 40 ára mega ekki fá efnið vegna aukaverkana á hjarta. Þá hefur efnið ekki verið samþykkt fyrir unglinga.
- Fjárhagsleg málefni
Farið yfir fjárhagsleg málefni og áætlun.
Fjallað um fjölda rúma á Hvammstanga og Hólmavík. Horft verður til sama fjölda og verið hefur undanfarið, 13 til 14 á Hvammstanga og 8 á Hólmavík, en þar er staðan sérstaklega snúin þar sem ekki hefur fengist hjúkrunarfræðingur við deildina.
Rætt almennt um skiptingu fjárveitinga og fjármögnunarlíkan vegna heilsugæslunnar.
Umræða var almennt um rekstur og áætlun.
- Framkvæmdir á Akranesi, flutningur lyflækninga- og handlækningadeildar
Lyflækningadeild flytur eftir viku, eða 16. desember. Gerð var öryggisúttekt á vegum slökkviliðsins s.l. mánudag og n.k. mánudag kemur heilbrigðseftirlitið fyrir sína úttekt.
Gert er ráð fyrir að flutningur handlækningadeildar verði jafnvel ekki fyrr en eftir áramót, vegna vöntunar á mönnum. Vantaði t.d. 14 vaktir sjúkraliða frá 23. janúar til áramóta. En deildarstjóri þar telur mjög erfitt að flytja fyrr en 3. janúar n.k.
Fram kom að ekki væri fyrirséð að við náum meira en 156 liðskiptaaðgerðum á árinu, eða 46 umfram þessara föstu.
Farið yfir framkvæmdir í Stykkishólmi.
Umræða var um skimanir og aðstöðu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:45
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.