Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 5. janúar 2022 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundurgerð frá 22. desember 2021 lögð fram og samþykkt.
- Horft um öxl.
JFJ fór yfir liðið ár.
Fulltúar fjölluðu um málefni liðins árs.
- Helstu verkefni næstu vikna.
Fjallað um covidstöðuna.
JFJ ræddi um helstu verkefni næstu vikna, mun einkennast af rekstrarmálefnum í ljós slæmrar rekstrarstöðu, skipulagi bólusetningar fyrir börn á næstu dögum. Skipulag hjúkrunarrýma í Stykkishólmi. Framkvæmdir á Akranesi, viðbót á starfsemi skurðstofu, leyfa mál vegna Ms Office samnings ríkisins. Skipulag á þjónustuþáttum sem fengist hafa sérstakar fjárheimildir fyrir.
- Framkvæmdir.
JFJ fjallaði um framkvæmdir í Stykkishólmi, fram kom að skipta þarf um glugga og klæðningu í elstu byggingunni á Stykkishólmi. Viðræður eru um búnaðarkaup. Enn hefur ekki verið gengið frá samningi á milli Stykkishólmsbæjar og Heilbrigðisráðuneytis um yfirfærsluna.
Fram kom að nýr tengiliður væri komin hjá Ríkiseignum.
- Fjárframlag til kaupa velferðartæknilausna.
JFJ sagði frá fjárveitingu Heilbrigðisráðuneytis til kaupa á velferðartækilausnum að fjárhæð 50 m.kr. í það heila, þ.e. með 9 m.kr. framlagi sem hafði komið áður til styrkingar á heimahjúkrun. Fram kom að ÞBH og RM eigi fund í næstu viku um lyfjaskömmtunarkerfi, jafnframt er unnið að innleiðingu á SmáSögu.
- Samþykkt verklagsreglu um viðbrögð við hvarfi á lyfjum.
Lagðar fram verklagsreglur um viðbrögð við hvarfi á lyfjum, útgáfudagur 21. desember 2021. Útg. 1.0
Verklagsreglurnar samþykktar. Reglurnar verða birtar á gæðahandbókinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.