Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. janúar 2022 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Vilborg Lárusdóttir.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 5. janúar 2022 lögð fram og samþykkt.
- COVID, hækkað viðbúnaðarstig almannavarna, staðan innan HVE og bólusetningar
Stjórnendur á HVE hafa verið kallaðir saman á fund til að fara yfir málin síðar í dag.
Fjallað um stöðu faraldursins. ÞB segir fjölda smita á niðurleið en staða Landspítala líklegast ráðið miklu til um ákvarðanir gærdagsins hjá almannavörnum. Varðandi HVE er nauðsynlegt að monitora stöðuna hér gagnvart okkar starfsfólki og starfseminni.
Erum að sjá lækkun á fjölda smita á Vesturlandi. Verður athyglisvert að sjá hvað kemur út úr stórri rannsókn hjá Íslenskri Erfðagreiningu en útkoman úr þeirri rannsókn verður leiðarvísir fyrir framhaldið.
Nauðsynlegt er að svo stöddu að við ástundum eigin sóttvarnir sem aldrei fyrr og höldum okkur frá stórum samkomum. Ekki þörf innan HVE að gera breytingar í matsal umfram það sem nú er. Ekki búið að taka afstöðu til elektívra aðgerða eins og er.
241 í gær auk Hólmavíkur og Hvammstanga, þá 249 í einangrun. 229 á Vesturlandi og 9 bætt við er staðan í dag. Tölur fara s.s. lækkandi.
Farið yfir viðbragðsáætlun HVE sem er á heimasíðu.
Varðandi viðbrögð á neyðarstigi, deildir á Akranesi gætu þurft að taka við sjúklingum af Landspítala. Ekki verið nýtt ennþá. Tilmæli landlæknis koma til varðandi það að hætta við skurðaðgerðir eða ef starfsmenn okkar á skurðstofu HVE verða of fáir til að sinna þessu þá kæmi til þess að lokað yrði fyrir valaðgerðir.
Punktar verða teknir saman eftir viðbragðsstjórnarfund um sviðsmyndir og viðbrögð HVE.
Bólusetningar barna eru að byrja á Vesturlandi. 200 skammtar blandaðir í morgun fyrir Akranes og byrjað verður á Akranesi í dag sem og Stykkishólmi. Stór hópur fullorðinna bólusettir í Borgarnesi í dag. Áframhald verður á bólusetningum barna út þessa viku og næstu.
- Fjárhagsleg málefni
Ákveðin biðstaða og vantar betri upplýsingar um fjáraukalögin, ekki komin sundurgreining á því hvað fer á hverja stofnun. Ekki komið erindi frá ráðuneyti um að að taka upp rekstraráætlun, líkt og barst um miðjan janúar 2021.
Ekki hægt að fara í önnur tækja eða búnaðarkaup en það sem komið var af stað fyrir áramót. Í janúar og febrúar er ekki hægt að taka við neinum beiðnum um slíkt.
- Málalyklar HVE
Málalykill sem okkur er skylt að hafa. Fyrsta ár með málalykil er tilraunaár og hægt að gera breytingar að þeim tíma liðnum ef með þarf. Verið að skoða hvort mögulega er hægt að nota SharePoint lausn innan Office fyrir skjalaskráningu. Þetta gerir það að verkum að samræmt er t.d. hvar fundargerðir eru geymdar óháð hver formaður nefndar er eða ef nefnd skiptir um formann eða þann sem sér um að vista fundargerðir. Einstaklingar geta s.s. sjálfir vistað undir þann flokk sem þeir eru að vinna við.
- Endurnýjun samnings við Landspítala – lagt fram til bókunar
Endurnýjaður samningur Landspítala og HVE um notkun og aðgang heilbrigðisstarfsmanna að sjúkragögnum/kerfum Landsípala kynntur stuttlega.
- Mannauðsmál
- Vilborg fer yfir niðurstöður mælinga í jafnréttisáætlun
Ræddar þær tölur sem teknar voru saman um mannauðsmælikvarða út frá mælikvörðum í jafnréttisáætlun. Ánægjulegt að veikindadögum hefur aðeins fækkað árið 2021 m.v. seinustu 2 ár.
Ræðir einnig að á döfinni sé skrifleg viðverustefna og á komandi mánuðum sé að koma að endurskoðun á jafnlaunavottun.
- Þórir upplýsir um breytingar á mönnun lækna á kvennadeild, læknamönnun í Borgarnesi og deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar
Læknir lét af störfum á kvennadeild um áramót og verið er að kanna ráðningu í hennar stað. Hrund kemur til með að kynna fyrir framkvæmdarstjórn þá valmöguleika sem eru í stöðunni.
Klara B. Gunnarsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:13.
Vilborg Lárusdóttir ritaði fundargerð.