Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. febrúar 2022 kl. 9:00 um Teams.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 26. janúar 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid, staðan innan HVE

Fjallað um Covid stöðuna innan HVE.  Fram kom hjá ÞB að nú væru 384 í einangrun á Vesturlandi, voru 362 í gær, 69 nöfn bættust við síðasta sólarhring.   224 eru skráðir í sóttkví.  Sagði að stórir hópar væru að útskrifast í dag, t.d. fóru yfir 20 manns út nú í dag ef Hvammstangi og Hólmavík eru með.

Rætt var um í ljósi þess hve langur tími líður nú á svari vegna sýna, jafnvel sólarhringur, hvort upphaf einangrunar taki mið af sýntöku eða greiningu. Fram kom hjá ÞB að nú virðist tíminn miðast við greiningu prófs, ekki sýntökudag.  Þetta þarf að laga.  Rætt um málið.

Fjallað um bólusetningar, fram kom hjá ÞBH að nú væri að styttast í að allir væru búnir að fá þriðju bólusetningar, nú eru það innan við 200 manns sem eiga eftir að fá fyrsta boð í örvunarskammt innan HVE.  Líklega verða bara skipulagðir nokkrir dagar þar sem boðið verður upp á bólusetningu, án sérstakrar boðunar.

 

  1. Rekstraráætlun 2022

Fjallað um rekstraráætlun árið 2022.  ÁÁ fór yfir rekstraráætlunina.  Rætt um möguleika til breytinga á rekstri og þjónustu á heilsugæslusviði svo hægt verði að ná niður kostnaði um allt að 82 m.kr. árið 2022.  Reynt verður til þrautar að fá hækkun fjárveitinga á árinu, enda er raun hækkun aðeins 0,4% á milli ára.

Stefnuskjal HVE til ársins 2024 var lagt fram.

 

  1. Endurskipan í stýrihóp um rafræna sjúkraskrá

JFJ lagði fram skipunarbréf í stýrihóp um rafrænna sjúkraskrá, þessir voru skipaðir:

  • Birna K. Hallsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri handlækningadeildar.
  • Guðrún Ingimarsdóttir, heilbrigðisgagnafræðingur HVE Akranesi.
  • Klara B. Gunnarsdóttir, deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar HVE á Akranesi.
  • Þórður Ingólfsson, yfirlæknir heilsugæslustöðvar HVE í Búðardal.
  • Þura B. Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE.

Hlutverk stýrihópsins er að:

  • Innleiða og fylgja eftir nýjungum í skráningu.
  • Samræma skráningu heilbrigðisstarfsmanna á HVE.
  • Stuðla að gæðum skráningar í sjúkraskrár.
  • Setja verklagsreglur og verklýsingar um skráningu.
  • Hvetja til vandaðra vinnubragða við skráningu í samræmi við lög og reglur.

ÞBH fór yfir nýleg verkefni stýrihópsins.

Skipun stýrihópsins samþykkt.

 

  1. Frá nefndasviði Alþingis -241. mál til umsagnar. Tillaga til þingsályktunar um greiningu á samúðarþreytu og tillögur að úrræðum.  

Lagt fram tillaga til þingsályktunar um greiningu á samúðarþreytu og tillögur að úrræðum.

Rætt um málefnið.

Fundi slitið kl. 10:20

Ásgeir Á ritaði fundargerð.