Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 26. janúar 2022 kl. 13:00 um Teams.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Covid staðan.

ÞB fór yfir stöðu mál og nýjustu breytingar.  Smitin eru í örum vexti, en 51 duttu inn síðasta sólarhring á Vesturlandi.  Nú er sóttkví einungis skylda ef smit er inni á heimili og krafa er um PCR próf eftir 5 daga.

Samþykkt var að kalla eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna eftir deildum sem eru í einangrun og sóttkví eins og staðan er í dag.

Rætt almennt um sóttkví og mögulega vinnu starfsmanna.  Skoða þarf hvert tilfelli fyrir sig, einnig hvernig starfsmenn koma til starfa eftir einangrun, en sóttkví C gildir þar í 7 daga eftir útskrift úr einangrun.  Aftur rætt um að hvert einstakt tilfelli verður skoðað sérstaklega, t.d. hvort starfsmenn séu í beinum samskiptum við sjúklinga og viðkvæma.

 

  1. Fundargerð frá 19. janúar 2022 lögð fram.

Fundargerð frá 19. janúar 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjárheimildir HVE samkvæmt fjárlögum 2022

Rætt um fjárheimildir og áætlun samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2022.  Fram kom að áætlun var lögð fram til ráðuneytis með um 170 m.kr. halla.   Þar af um 165 m.kr. vegna heilsugæslusviðs.

  1. Stefnumótun 2022 til 2024.

Lögð fram stefnumiðuð áætlun til þriggja ára sbr. 31. gr. laga um opinber fjármál, þ.e. fyrir árin 2022 til og með 2024. Farið yfir skjalið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.