Fundur haldinn miðvikudaginn 16. febrúar 2022 kl. 9:00 um Teams.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 2. febrúar 2022 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid, staðan innan HVE

Fjallað um stöðuna innan HVE. Fram kom að nú væri staðan í raun graf-alvarleg í ljósi þess að nú væri þetta farið að ógna starfsemi HVE.  Nú eru 399 skráðir í einangrun innan svæðis HVE, um 100 manns greinast á okkar svæði á hverjum degi. 248 eru nú í einangrun hér á Akranesi, farið að snerta starfsmenn okkar nokkuð.  En samtals eru um 30 starfsmenn frá vinnu núna vegna covid eða sóttkvíar.

Nefndi sem dæmi að nú væri um 27 íbúar smitaðir í Grundafirði, eða um 12% af íbúa fjölda, smit eru um 3,3% af fjölda íbúa á Akranesi sem dæmi.  Á starfssvæði HVE eru þetta um 2,1% af íbúum.

Farið yfir flæðirit Landspítala sem einnig mun gilda hér innan HVE varðandi starfsmenn. Þó verða notuð hraðpróf í stað PCR prófa.

Rætt um að ef það á að aflétta öllu, þá verði að hætta sýnatöku að auki. Enda verði karfa um einangrun lögð af.

Þá var rætt um bólusetningar, boðaðir eru um 540 í dag.  Umræða var um erindi ráðuneytis um þjálfun fleiri starfsstétta til bólusetninga, fundarmenn sammála um að þetta erindi komi nú fremur seint fram, enda faraldurinn á enda.  Enda fari mun meiri tími í utanumhald, skipulag og blöndum efna en eiginleg bólusetning.

  1. Hjúkrunarrými í Stykkishólmi

Farið yfir væntanleg hjúkrunarrými á HVE í Stykkishólmi.  En gengið var frá samkomulagi á milli HRN og Stykkishólmsbæjar um flutning á þjónustu Dvalarheimilisins í Stykkishólmi til HVE.  Þar kemur meðal annars fram að aðilar séu sammála um að HVE taki við þjónustunni frá og með 1. júní 2022, sem felur í sér að samningur Stykkishólmsbæjar við Sjúkratyggingar Íslands mun gilda til og með 31. maí 2022.

HVE hefur móttekið lista yfir 19 starfsmenn sem færast yfir á HVE frá Stykkishólmsbæ, samtals 15,6 stöðugildi.  Ganga þarf frá formlegri ráðningu þessara starfsmanna kjósi þeir svo, fyrir 1. apríl n.k.

  1. Liðskiptaaðgerðir og framkvæmdir við skurðstofu 3

Fundur var haldinn með fulltrúum HRN 15. febrúar um væntanlega liðskiptamiðstöð hjá HVE.  Þar kom fram að ráðgert er að skurðdeildin verði tilbúinn í byrjun maí, það hefur orðið um 2 vikna seinkun á smíði skurðstofnunar sem sett er inn í húsnæðið. Fjallað var um hækkun á gjaldi pr. aðgerð á fundinum og hækkun á verðum tækjabúnaðar. Fundað verður sérstaklega með ráðuneytinu fljótlega um þau mál.

Samþykkt að endurverkja auglýsta stöðu svæfingalæknis í ráðningarkerfi. JFJ, ÞB og ÁÁ munu fundu með yfirlækni svæfinga um málefnið.

  1. Mannauðsmál

5.1 Rafrænt eyðublað um ráðningu nýrra starfsmanna.

Vilborg kynnti lítilega rafrænt eyðublað um ráðningu nýrra starfsmanna.

5.2 Verklagsreglur um viðbrögð vegna gruns um áfengis, vímuefna eða notkun á slævandi lyfjum.

Rætt um endurskoðun þessarra reglna frá september 2019.

VL og ÞBH munu fara yfir verklagsreglurnar og leggja fram endurskoðaðar reglur á næsta fundi.

5.3 Jafnlaunaúttekt.

Jafnlaunaúttekt átti að vera í mars, en hefur verið fresta til maí n.k.

5.4 Auglýsing stöður lækna.

ÞB fjallaði um auglýsingar um stöður lækna, fram kom að ekki hafi komið umsóknir um stöðu heilsugæslulæknis í Borgarnesi.

5.5 Byrlanir.

Rætt um gerð viðbragðs fyrir starfsmenn okkar ef grunur vaknar um byrlanir skjólstæðinga sem til okkar leita vegna slíks.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.