Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 16. mars 2022 kl. 9:00 um Teams.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 2. mars 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid og staðan innan starfsstöðva HVE

Fjallað um stöðuna vegna Covid núna.   Fram koma nú væru 773 skráð smit á Vesturlandi, hefur því fækkað um ca. 300 smit síðan fyrir viku.  Greindust 104 jákvæð sýni í gær.  Elstu jákvæðu sýnin eru viku gömul.  Smit virðast því vera aðeins á niðurleið í það heila.   Rætt um hraðpróf, þar kom frá hjá ÞB að HH mun loka þeim stöðum sem sinnt hafa hraðprófum, vísa á einkaaðila.

Umræða hefur verið hér á Vesturlandi að hætta hraðprófum nú um mánaðarmótinn, á von á að það komi miðlægar reglur um efnið.  Samningur HVE á Akranesi við sýnatökuaðila þar rennur út nú um næstu mánaðarmót.  Stefnt er á að hætta þessum prófum um næstu mánaðarmót.

 

  1. Fjárhagsleg málefni

JFJ sagði stöðuna nú mjög erfiða, greiðslustaða mjög slæm eins og er, enda hafa framlög ekki borist með eðlilegum hætti.  Þá kom fram hjá henni að forstjórar heilbrigðisstofnana væru búnir að óska eftir fundi um málefnið með fulltrúum heilbrigðisráðuneytis og fjármálaráðuneytis, það liggur fyrir að ef kerfislægir þættir í fjárveitingum verði ekki bættir þá stefnir í erfiðan niðurskurð á árinu.

Rætt um fjárhagsleg málefni.

  1. Staða framkvæmda

JFJ fór yfir stöðu framkvæmda.  Fram kom hjá henni að stefnt væri að úttekt á handlækningadeildinni þann 18. mars og stefnt er að því að deildin flytji þann 1. apríl n.k.  Skurðstofan á að verða tilbúin í byrjun maí mánaðar. Endurbætur í Stykkishólmi hafa dregist nokkuð vegna viðbótarverka, t.d. á að skipta um glugga sem ekki var gert ráð fyrir.  Horft er til þess að húsið þar verði tilbúið þann 1. september n.k.  Nefndi að þann 1. júní taki HVE við rekstri hjúkrunarþjónustunnar, semja þarf við bæjaryfirvöld um að fá að hafa reksturinn í núverandi húsnæði tímabili frá 1. júní til 1. september.

Þá verður fundur með yfirmönnum slysa- og göngudeildar um þjónustu og framtíðarskipulag nú í dag.

  1. Verkefni í heilsugæslu

Lagður fram tölvupóstur frá RM frá 14. mars 2022.   RM fór yfir efnið.

 

  1. Bréf frá ljósmæðrum á kvennadeild

Lagt fram bréf frá ljósmæðrum á kvennadeild dags. 7. mars 2022.

Þar óska þær eftir að fá eitt fast herbergi í viðbót í starfsmannabústað þar sem nú starfi 8 ljósmæður á deildinni sem ekki eiga fasta búsetu á Akranesi og þurfi því öruggan svefnstað milli vakta.

 

  1. Mannauðsmál.
    • Staða yfirhjúkrunarhjúkrunarfræðings á Akranesi.

Staðan verður auglýst nú í vikunni.   Núverandi yfirmaður mun láta af störfum þann 1. júlí 2022.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.