Fundur haldinn miðvikudaginn 30. mars 2022 kl. 9:00 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.   Þórir Bergmundsson er í orlofi.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 23. mars 2022 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid, staðan

Fjallað um stöðu mála.   Fram kom að augljóst væri að covidið væri á niðurleið, t.d. voru um 16 í sýnatöku í gær á Akranesi og um 10 í Borgarnesi.  Þá nefndi JFJ að skæð inflúensa væri í gangi þessa daganna.

Rætt um heimsóknir, fram kom að heimsóknir hafa verið leyfðar aftur á stofnuninni frá kl. 16 til 17 fyrir einn gest á dag, frá og með 29. mars að telja.

Allir staðir HVE mun aðeins taka hraðpróf, ekki PCR.  Gerðar hafa verið breytingar á þá vegu í Heilsuveru.

  1. Samkoma fyrir starfsmenn

Rætt um samkomu fyrir starfsmenn og maka þeirra laugardaginn 21. maí 2022.

JFJ lagði fram drög að auglýsingu fyrir starfsmenn. Verður birt í dag á WorkPlace.

  1. Erindi Lyfjastofnunar. Markaðseftirlit – gæðastýring lækningatækja.

Lagt fram erindi Lyfjastofnunar um úttekt með lækningatækjum dags. 24. mars 2022.

Úttektin mun eiga sér stað þann 27. apríl 2022 á milli kl. 9 til 16.  Gögn sem Lyfjastofnun óskar eftir að liggi fyrir eigi síðar en 20. apríl 2022.

  • Starfslýsingar lykilstarfsmanna, þ.e. starfsmanna sem bera ábyrgð á gæðum og öryggi lækningatækja.
  • Yfirlit gæðahandbókar vegna lækningatækja.

Þá óskar Lyfjastofnun eftir að eftirfarandi gögn verði tiltæk við upphaf úttektar þann 27. apríl 2022.

  • Gæðahandbók, gæðayfirlit fyrir lækningatæki.
  • Listi yfir skráð gæðaatvik, frávik, galla og óvirkni lækningatækja sl. tvö ár.
  • Listi yfir lækningatæki án CE merkinga sl. tvö ár.
  • Listi yfir skráð viðhald sl. tvö ár.
  • Listi yfir þjálfun starfsmanna á lækningatækjum sl. tvö ár.

ÁÁ mun setja verkið að stað.

  1. Stofnun ársins – niðurstöður 2021

Vilborg fór yfir niðurstöður um stofnun ársins 2021.

Þá var fjallað um notkun Workplace meðal starfsmanna. Hvetja þarf starfsmenn til frekari þátttöku á miðlinum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.