Fundur haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022 kl. 11:30 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  Þórir Bergmundsson er í orlofi.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 16. mars 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid, staðan og hraðpróf

Fjallað um covid stöðuna og hraðpróf.

Staðan er betri en verið hefur undanfarnar vikur. JFJ fór yfir vikulegt stöðumat sem sent er til Landlæknis.  Þar kom fram að staðan væri betri nú en áður, en þó nokkuð um fjarvistir starfsmanna.

Fram kom að samningur við ritari.is muni renna út þann 31. mars n.k.  Komist hefur verið að samkomulagi við fyrirtækið um að sinna sýnatökum út apríl mánuð en í minna mæli verið hefur.   Aðeins verður boðið upp á sýnatökur virka daga, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá 1. apríl.  Skoðað verður hvort heimilt verði að taka gjald fyrir þetta.   Skoða þarf á öðrum starfsstöðvum hvernig sýnatöku verður háttað.

Umræða var um heimsóknir til sjúklinga, en gefist hefur mjög vel að miða heimsóknartíma við ákveðna tíma.

 

  1. Nývest- bréf til fyrir tækja og stofnana á Vesturlandi

Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 8. mars 2022 um mögulega þátttöku í stofnun sjálfseignarstofnunar um nýsköpunarnet Vesturlands.

Fram kemur í bréfinu að nýsköpunarnetið er fyrir alla, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og einstaklinga.  Því er ætlað að tengja saman ólíka hópa, miðla upplýsingum, aðstoða frumkvöðla og fræða þá sem hafa áhuga á þróun atvinnulífs og nýjum verkefnum.  Á Vesturlandi eru öflug fyrirtæki, öflugir skólar og drífandi einstaklingar, sem mikilvægt er að tengja mun betur saman en áður í því skyni að nýta sem best þau tækifæri sem til staðar eru í þróun atvinnulífs og nýsköpun.

Félagið mun verða stofnað þann 6. apríl n.k. og stofnframlag er kr. 30.000,-

Samþykkt að HVE verði stofnfélagi.

  1. Samkoma fyrir starfsmenn

Rætt um mögulega samkomu fyrir starfsmenn. Bjóða öllum starfsmönnum og mökum til samveru á einum stað.  Stefnt verður að laugardeginum 21. maí, öllum verður boðið upp á rútuferð á milli staða.

Skoðað verður hvar best verður að halda slíka móttöku.

Fundað verður næstu daga vegna málsins.

  1. Önnur mál.

Fram kom hjá Rósu að eftir um 10 daga er von á allt að160 flóttamönnum, munu dvelja á Bifröst.

Málefnið rætt.

Fram kom að verkefnið væri undir stjórn sveitarfélagana en HVE þarf að vera í viðbragðstöðu vegna málsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:40.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.