Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 26. október 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 12. október 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Rekstararáætlun

Rætt um gerð rekstraráætlunar fyrir næsta ár.  Fram kom að m.v. framkomið fjárlagafrumvarp stefni í niðurskurð, sérstaklega á heilsugæslu- og hjúkrunarsviði.  Sérstaklega var rætt um mikið frávik á vaktkostnaði lækna á fjármögnunarlíkani. Fram kom að ráðuneytinu hafi verið bent á þessa skekkju frá fyrri hluta ársins án þess að niðurstaða hafa fengist, á það hefur verið bent að draga þurfi úr vaktþjónustu til að mæta þessum mun.

 

  1. Undirbúningur fyrir fund með HRN

Fjallað um dagskrá fundarins, fundarmenn sammála um að aðalþungi fundarins þurfi að snúast um fjárveitingar.

Farið var yfir fjölda skilgreindra opinna rúma á hverri deild.

A-deild                 16

B-deild                 14

C-deild                  10

Hólmavík                7

Hvammstangi       15

Stykkishólmur      18+4 frá 1. mars 2023.

 

  1. Staða aðstoðardeildarstjóra á handlækningadeild

ÞBH fjallaði um mögulega nýja stöðu aðstoðardeildarstjóra á Handlækningadeild.   Samþykkt að auglýsa eftir aðstoðardeildarstjóra.

Rætt almennt um nýtingu deildarinnar.

 

  1. Jólaglaðningur til starfsmanna

Rætt um jólaglaðning til starfsmanna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:22

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.