Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 16. nóvember 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  Vilborg Lárusdóttir er í orlofi.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 2. nóvember lögð fram og samþykkt.

 

  1. Rekstararáætlun 2023

ÁÁ fór yfir stöðu rekstraráætlunar fyrir árið 2023.   Fram kom að miðað við spá rekstrarútkomu árið 2022 næmi fjárvöntun ríflega 282 m.kr. á næsta ári, en spá ársins 2022 gerir ráð fyrir um 269 rekstrarhalla miðað við fjárlög ársins.  En þegar tekið er tillit til aukafjárveitinga þessa árs, samtals um 235 m.kr. mun hallinn verða um 35 m.kr.  Aukafjárveitingar fengust vegna covid kostnaðar og vegna liðskiptaseturs.

Miðað við starfsemi þessa árs þýða núverandi fjárlög lækkun um 5% á heilsugæslusviði, hækkun um 1,4% á sjúkrasviði og lækkun um 3,8% á hjúkrunarsviði, þ.e. þegar nýtt framlag vegna hjúkrunarsviðs Stykkishólms er dregið frá.

Ítarlega umræða var um skil og frágang áætlunar.

 

  1. Erindi frá Dalabyggð. Drög að viljayfirlýsingu um samþætta öldrunarþjónustu í Dalabyggð og tengsl við tillögur um aukna samvinnu í öldrunarþjónustu samkv. niðurstöðum verkefnahóps SSV 2022.

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu HVE og Dalabyggðar um að kanna grundvöll þess að hefja undirbúning að samþættingu um rekstur og framkvæmd þjónustu við aldraða í Dalabyggð.  Drögin voru unnin af sveitastjóra Dalabyggðar.

Farið yfir dröginn og komið með tillögur að breytingum. Fundarmenn sammála um að tenging HVE við Fellsenda í yfirlýsingunni eigi ekki við, enda er sá staður ekki hluti af öldrunarþjónustu svæðisins.

Skipa þarf tvo fulltrúa í starfshóp.  Samþykkt að skipa Þuru B. Hreinsdóttur í hópinn sem fulltrúi framkvæmdastjórnar og annað hvort Þórð Ingólfsson eða Þórunni B. Einarsdóttur.

 

  1. Innleiðing farsældarlaga. Boðaður fundur 21. nóvember með forstjórum heilbrigðisstofnana.

Lagt fram erindi Mennta- og barnamálaráðuneytinu frá 11. nóvember 2022 um innleiðingu farsældarlaga.

Lögin fela í sér breytta nálgun þegar kemur að þjónustu við börn. Í lögunum er m.a. að finna það mikilvæga nýmæli að öll börn og foreldrar þeirra, sem á þurfa að halda, eigi rétt á aðgangi að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns. Frá meðgöngu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar í heilbrigðisumdæmi barns. Hlutverk tengiliðar er að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.

Í erindinu kom fram að á hverri heilsugæslustöð skuli í það minnsta einn starfsmaður fara með hlutverk tengiliðar og skal þess gætt að hann hafi svigrúm frá öðrum verkefnum til að sinna hlutverkinu.

Fram kom hjá JFJ að ekki væri gert ráð fyrir neinni fjárveitingu til að innleiða þessa viðbót en sveitarfélög hafi fengið fjárveitingar til að mæta þessum breytingum.

Fundarmenn sammála um að heilsugæslurnar verði tilbúnar að fara að stað í verkefnið þegar fjármagn fæst, annað hvort frá ríki eða sveitarfélögum á hverja og eina heilsugæslustöð hjá HVE.

Boðað hefur verið til fundar með forstjórum heilbrigðisstofnana og fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis þann 21. nóvember n.k.

 

  1. Röntgentæki fyrir Búðardal og Ólafsvík o.fl.

Fram kom að borist hafi erindi frá HRN um framlag til að kaupa tvö röntgentæki, fyrir Búðardal annars vegar og Ólafsvík hins vegar.  Um er að ræða tæki sem svipar til tækis sem keypt var fyrir Stykkishólm.

 

  1. Stigun bráðaþjónustu heilbrigðisstofnana

Lagðar fram tillögur um stigun bráðaþjónustu heilbrigðisstofnana frá 25. október 2022.

Fjallað var um flokkun heilsugæslustöðva sbr. stigun.

 

  1. Viðbótargreiðslur á LSH – ÞBH   

Rætt um minnisblað framkvæmdastjórnar Landspítala varðandi viðbótarlaun vegna vinnuskyldu um jól og áramót árið 2022.   ÞBH fór yfir málið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:00

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.