Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. janúar 2023 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Þura B. Hreinsdóttir er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 21. desember 2022 lögð fram og samþykkt.
- Rekstraráætlun og fjárlög 2023.
Fjallað um rekstráráætlun og fjárlög ársins 2023, en fram kom að áætlun verði send í ráðuneytið með um 280 m.kr. halla þó vitað sé að líklegast verði henni vísað til baka. En raunlækkun fjárveitinga á árinu 2023 m.v. árið 2022 nemur 43,3 m.kr. eða um 1%, en á árinu 2022 eru þó tilfallandi viðbætur vegna covidkostnaðar og skurðstofu um sem ríflega 200 m.kr., þannig er hækkun af reglulegri starfsemi um 0,6% á milli ára, þá eru viðbætur vegna sameiningu dvalarheimilis í Stykkishólmi reiknaðar frá.
Ítarlega rætt um málið, samþykkt að senda áætlunin með lítilsháttar breytingum eftir loka yfirferð ÁÁ og JFJ, sem m.a. munu taka tillit til fjármögnunarlíkans fyrir hverja heilsugæslustöð.
- Mönnun lækna í heilsugæslu, staðan.
Fjallað um mönnun lækna á heilsugæslustöðvum okkar eins og staðan er núna.
Staðan á Akranesi er mjög þröng núna, eru aðeins þrír til fjórir eins og er á næstu mánuði. Í Borgarnesi er staðan að lagast eftir mjög erfiða tíma á síðasta ári, nýr læknir er að hefja störf í Borgarnesi nú í febrúar og verða þá þrír fastráðnir læknar þar við störf. Að sama skapi hefur staðan verið mjög erfið undanfarna mánuði í Ólafsvík, en búið er að tryggja fasta mönnun tveggja lækna þar næstu mánuðina, þó verður annar þeirra með hluta af þjónustu sinni í formi fjarlækninga. Fram kom að hann hafi nokkru ára reynslu að slíkri vinnu. Aðrir staðir eru í ágætu jafnvægi eins og er, sértaklega í Búðardal og á Hvammstanga þar fastir læknar eru við störf sem fyrr. Grundarfjörður virðist þó vera eitthvað brotthættur sem stendur þó mönnun liggi fyrir.
- Þakkarbréf forseta Íslands og frú Elizu Reid – lagt fram.
Lagt fram þakkarbréf forseta Íslands og frú Elizu Reid, dags. 21. desember 2022, í tengslum við heimsókn þeirra á Akranes og á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í tengslum við 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar.
- Fundur sem haldinn var 28.des. sl. vegna bráðavanda Landspítala.
JFJ fjallaði um fund með heilbrigðisráðuneytinu vegna þungrar stöðu á Landspítala sem haldinn var 28. desember s.l.
- Gjafa – og minningarsjóður SHA
Gjafa- og minningarsjóður var stofnaður árið 2007, en fram kom að tímabært væri að leggja hann niður, tekjur af minningargjöfum og þess háttar hafa nánast fallið niður. Boðað verður til fundar með stjórn á næstu dögum þar sem formlega verður óskað eftir því að loka sjóðnum.
Fleira ekki gert og fundið slitið kl. 11:10
Ásgeir Á. ritaði fundargerð