Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. janúar 2023 kl. 9:00.

 

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 4. janúar 2023 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Rekstraráætlun og fjárlög 2023.

Fjallað um rekstraráætlun og fjárlög árið 2023 og lögð fram greinargerð JFJ með rekstraráætlun ársins 2023.  Rekstraráætlunin var send með um 250 m.kr. halla, eða 3,55%.  Jafnframt var óskað eftir viðræðum við heilbrigðsmálefnið hið fyrsta.

Þá kom fram að halli á heilsugæslusviði væri samkvæmt áætlun um 162 m.kr. á sjúkrasviði um 64 m.kr. og á hjúkrunarsviði 24 m.kr.  ÁÁ nefndi að áætlaður halli á heilsugæslusviði einskorðaðist nær eingöngu við vanreikning á vaktkostnaði lækna.

 

  1. Fundur með Strategíu 18.janúar.

Rætt um fund með Strategíu þann 18. janúar.

 

  1. Erindi frá HH til rekstraraðila heilsugæslustöðva um allt land um auglýsingar vegna árvissra álagspunkta.

Lag fram erindi frá HH til rekstraraðila heilsugæslustöðva frá 6. janúar 2023. Þar óskar forstjóri HH eftir því að heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni taki þátt í auglýsingarkostnaði vegna ársvissra álagspunkta, auglýsingaherferð heilsugæslunnar „Heima er pest“.

Samþykkt að HVE verði með í verkefninu.

 

  1. Verklag við ráðningar í opinber störf – álit umboðsmanns Alþingis. Lagt fram til upplýsinga.

Lagt fram álit umboðsmanns Alþings frá 21. október 2021 um verklag við ráðningar í opinber störf.

 

  1. Mannauðsmál.

 

  • Erindi frá kvennadeild, ÞBH leggur fram.

ÞBH ræddi um beiðni kvennadeildar um að bæta við mönnun sjúkraliða á deildinni í ljósi manneklu hjá ljósmæðrum.   Þannig verði þær með fasta sjúkraliða í stað þess að samnýta með handlækningadeild.  Fram kom að í raun er rými fyrir þetta miðað við rekstaráætlun, en þar inni eru vantnýttar stöður ljósmæðra. Samþykkt að ónýttar stöður ljósmæðra verði nýttar fyrir sjúkraliða.

Í umræðunni var lagt fram nýtt erindi frá heilbrigðisráðuneytinu frá 10. janúar 2023 um verkaskiptingu heilbrigðisstarfsmanna.  Þar óskar ráðuneytið eftir upplýsingum stofnana um hvort heilbrigðsstéttir séu þjálfaðir í þverfaglegi teymisvinnu og hvaða námskeið standi til boða.

  • Stykkishólmur, vegna yfirfærslu hjúkrunarheimilis.

Fram kom að ekki hafi allir samþykkt eða staðfest móttöku tilkynningar um breytingar.

Þá var rætt um eldhúsið sem mun færast úr samstarfssamningi við Stykkishólmsbæ yfir til HVE.

Fundað verður með stjórnendum þar á næstunni vegna málsins.

  • Ný göngudeild á Akranesi.

Rætt um yfirfærslu starfsmanna á nýja göngudeildareiningu.

  • Umsókn um stöðu deildarlæknis.

Rætt um umsókn um stöðu deildarlæknis.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:55

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.