Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. janúar 2023 kl. 9:00.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 11. janúar 2023 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Rekstraráætlun og fjárlög 2023, framvinda frá síðasta fundi.

Fjallað um rekstraráætlun og fjárlög árins 2023.  Fjallað um fundi með heilbrigðisráðuneytinu, fyrst fund ÁÁ með Guðmanni s.l. föstudag og fund JFJ og ÁÁ með Guðmanni og Runólfi s.l. mánudag. Áætlun var skilað með um 250 m.kr. halla, 162 á heilsugæslusviði, 64 á sjúkrasviði og 24 á hjúkrunarsviði. Fram kom að í samræmi við LOF, lög um opinber fjármál væri það óheimilt.

Fjárheimildir eru að hækka um 1,2% af reglulegri starfsemi á milli ára.

Þar kom fram að ráðuneytið mun skoða útreikninga fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar með tilliti til vaktkostnaðar. Þá ætlar ráðuneytið að skoða kostnaðarhækkanir á húsleigu undanfarin ár og miklar lífeyrisskuldbindingar á sjúkrasviði HVE á Akranesi, en þær námu síðasta ár um 78 m.kr.

 

  1. Önnur mál

3.1 Greiðsluþjónusta Fjársýslu ríkisins.

Rætt var um greiðsluþjónstu.

3.2 Mannauðsstjóri.

Fram kom að gengið hafi verið frá ráðningu við Sigurð Þór Sigursteinsson, iðjuþjálfa í stöðu mannauðsstjóra vegna árs afleysingu núverandi mannauðsstjóra vegna fæðingaorlofs.

Hlé er gert á fundi kl. 9:45 til 10:00 skv. dagskrá.

Fundur haldinn með Strategíu kl. 10:00 til 11:30

 

Mættir:     Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Frá Strategíu, Margrét Sanders og Guðrún Ragnarsdóttir.

 

Dagskrá.

  1. Kynning og umræða um verkefnislýsingunni – skilgreina umfang verkefnisins
  2. Skipulag funda – ákveða tímasetningar
  3. Skilgreina helstu hagaðila

 

Samþykkt var að stefna að fyrsta vinnufundi með lykilstjórnendum þann 15. febrúar n.k. og síðan í hverri viku eftir það. Lögð verður fram tímalína fyrir aðila, MS og GR munu senda tillögur.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:35

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.