Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. febrúar 2023 kl. 9:00

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerða

Fundargerðir frá 18. og 25. janúar lagðar fram og samþykktar.  Jafnframt var ákveðið að fara yfir fundargerð í lok hvers fundar.

 

  1. Rekstraráætlun og fjárlög 2023

Rætt um rekstraráætlun og fjárlög fyrir árið.  Fram kom að ekki hafi enn komið viðbrögð frá ráðuneytinu eftir fundi sem haldnir voru þann 13. og 16. janúar s.l. vegna fyrirséðs rekstrarvanda á árinu.

Læknisþjónusta og sjúkraflutningar fengu sérstaka umræðu. En þar er frávikið mest miðað við fjármögnunarlíkanið. Rætt var um að skila áætlun með reiknuðum mínustölum á hverja starfsstöð tengt fjármögnunarlíkani heilsugæslunnar.

Umræða var um tækjakaup, fjárhæðir og mælikvarða við ákvörðunum tækjakaupa.

 

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 (beiting nauðungar í heilbrigðisþjónustu). Umsagnarfrestur til 14. febrúar.

Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga.  Rætt um málefnið.

 

  1. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 (heimilisofbeldi). Umsagnarfrestur til 10.02.2023.

Lagt fram frumvarp til laga um breyting á lögum er varða grun um heimilsofbeldi.

 

  1. Starfsánægjukannanir.

VL fjallaði um kerfi sem til eru til að halda utan um starfsánægjukannanir.

Kerfin eru Gallup Access, HR monitor, Moodup og Survey Monkey.  Fór sérstaklega yfir Moodup og HR monitor. Survey monkey er ekki talið uppfylla kröfur.

Samþykkt að ræða við Moodup til prufu í eitt ár, fram kom að það væri svo þriggja mánaða uppsagnarfrestur.

Þá var til umræðu hækkun á kostnaði við workplace undanfarið.

 

  1. Námskeið í endurlífgun og skyndihjálp.

VL fjallaði um fyrirhuguð námskeið í endurlífgun og skyndihjálp.

Fram kom að hún hafi verið í viðræðum við Láru Gísladóttur og Önnu Þóru Þorgilsdóttur um stutt skyndihjálparnámskeið nú í mars.  Ýmist verður boðið upp á 2 klst. og 4 klst. námskeið eftir starfsstéttum.  Gert er ráð fyrir að þær bjóði upp á þessi námskeið á öðrum starfsstöðvum, eða þar sem ekki fást heimamenn í kennsluna.  Verklagsreglur í gæðahandbók verða endurskoðaðar.

 

  1. Jafnréttisáætlun HVE.

VL fjallaði um nýja jafnréttisáætlun HVE fyrir árin 2023 til 2025. Fór yfir helstu breytingar frá núverandi jafnréttisáætlun.  Fulltrúar munu fá áætlunina til yfirlestrar og skila fyrir mánudaginn 6. febrúar 2023.

 

  1. Skipan umhverfisráðs HVE.

JFJ ræddi um skipun umhverfisráðs HVE, kallað hefur verið eftir aðilum frá öllum stöðum, nú er beðið eftir tilnefningum frá tveimur stöðum.

  1. Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu 2023 lausir til umsóknar. Umsóknarfrestur til 28. febrúar 2023.

Rætt um gæða- og nýsköpunarverkefni í heilbrigðisþjónustu.

 

  1. Norrænt verkefni – stuðningur við að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu. – Umsóknarfrestur til 20. febrúar 2023. 

Fjallað um norrænt verkefni vegna stuðnings við að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu.   ÞBH mun skoða málið sérstaklega með vinnuhópnum um samþættingu þjónustu HVE og Dalabyggð.

  1. Samþykkt fundargerðar.

Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:39

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.