Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. mars 2023 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Áhættumat- og áfallaþol stofnana. Bréf frá embætti Ríkislögreglustjóra.
Lagt fram bréf frá Ríkislögreglustjóra, dags. 6. febrúar 2023 um skyldur stofnana um að gera áhættumat og kanna áfallaþol. Þar er óskað eftir því að stofnunin tilefni tengilið, til samskipta við Almannavarnardeild og til samskipta vegna gerð áhættumats og könnun áfallaþols.
Fram kom að JFJ hefur tilgreint sjálfan sig sem tengilið.
Þá var óskað eftir upplýsingum um hvenær stofnunin hyggst hefja vinnu við fyrrnefndar greiningar og/eða upplýsingar um hver sé staða umræddra greininga í dag.
Rætt var um áhættumat sem er í viðbragðsáætlun hjá okkur.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um réttindi sjúklinga (refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika).
Lagt fram og rætt um frumvarp til laga um breytingar á lögum sbr. ofangreint.
- Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar, drög að líkani með breytingum.
Lögð fram drög að fjármögnunarlíkani heilsugæslunnar á landsbyggðinni, útgáfa 2023.
- Samþætting þjónustu í þágu farsældar, erindi frá HRN 28.02.23
Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu um úthlutun fjármagns frá mennta- og barnamálaráðuneytinu að fjárhæð kr. 10.375.000,-
Af hálfu mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur verið áréttað að fjármagninu sé einkum ætlað að fjármagna þjónustu tengiliða og einnig sé tilteknum hluta þess ætlað að koma til móts við viðbótarkostnað hjá stofnunum vegna aukinnar teymisvinnu á 2. og 3. stigi. Þá sé hluti fjármagns ætlaður til innleiðingar breytinganna, m.a. þá breyttu nálgun sem þau fela í sér. Þannig sé skýrt að fjármagninu sé ekki ætlað að standa undir rekstri úrræða innan heilbrigðiskerfisins.
Í lögunum er m.a. kveðið á um það að öll börn og foreldrar eigi rétt á aðgangi að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns, að þeirra beiðni. Frá meðgöngu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar. Hlutverk tengiliðar er að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fyrsta stig í samræmi við óskir foreldra og eða barns.
Rætt var um skiptingu fjármagns á milli starfsstöðva og almennt skipulag.
- Skólahjúkrunarfræðingur í Borgarbyggð og á Snæfellsnesi vegna framhaldsskóla.
ÞBH og RM upplýstu að nú hafi verið skilgreindur hjúkrunarfræðingur í 12,5% fyrir þetta starf vegna Menntaskóla Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
- Samþykkt fundargerðar
Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:35
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.