Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 5. apríl 2023 kl. 9:30 á Akranesi.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  Þórir Bergmundsson er í orlofi.

 

Dagskrá.

  1. Bréf frá stjórn Brákahlíðar vegna uppsagnar þjónustusamnings

Lagt fram bréf frá stjórn Brákahlíðar vegna uppsagnar HVE á þjónustusamningi við Brákarhlíð, dags. 29. mars 2023.

Rætt um málið, fram kom að uppsögn samnings er vegna læknaskorts í Borgarnesi, því getur HVE ekki ábyrgst fullnægjandi þjónustu.

JFJ mun svara stjórn Brákarhlíðar efnislega.

 

  1. Mönnunarmál
  • Erindi frá deildarstjóra lyflækningadeildar vegna mönnunar í sumar

Rætt um erindi frá deildarstjóra lyflækningadeildar vegna slæmrar mönnunar hjúkrunarfræðinga nú í sumar, fram kom hjá ÞBH að nú í sumar sé mjög erfitt að fá afleysingu, nú vanti í það minnsta tvö stöðugildi hjúkrunarfræðinga á deildina almennt.

Fundað verður með stjórnendum legudeilda nú í dag vegna málsins.

  • Önnur mönnunarmál

ÞBH sagði frá heimsókn sinni til Ólafsvíkur vegna mönnunar þar og í Grundarfirði.   Einnig var rætt um mönnun í Stykkishólmi.

 

  1. Samþykkt fundargerðar

Fundargerð yfirfarin og samþykkt.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.