Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 19. apríl 2023 kl. 9:00.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Sigurður Þór Sigursteinsson og Rósa Marinósdóttir, Ásgeir Ásgeirsson í orlofi.
Dagskrá.
- Framtíðarsýn heilsugæslu – samantekt að loknum fundi með Strategíu og næstu skref.
Framkvæmdastjórn þarf að kynna áætlun fyrir starfsfólki á heilsugæslustöðvunum frá 10. maí til 30. maí. Áætlað að byrja á símsvörum á Snæfellsnesi. Farið yfir fjölda símtala á hverjum stað sem unnið var fyrir nokkru. Verið að skoða afgreiðslustanda í afgreiðslur.
Rætt um hvernig hægt er að breyta verklagi á símaþjónustu og öðru til að bæta þjónustu við einstaklinga. Samtal við stjórnendur þarf að eiga sér stað SS tekur það að sér að skoða það.
Stefnt að auka notkun á Heilsuveru.
Stefnt á Teams fund 17. maí kl. 10.30 –12.00 með stjórnendum sem voru á Hótel Hamri sl. vor til að kynna vinnu Strategíu.
- Fjárveiting til tækjakaupa 50 miljónir.
Fjármagni skipt niður á staði. Samkæmt lista sem búið var að vinna fyrir áramót.
- Gagnastöfnun vegna sumarstarfsemi 2023 – Erindi frá HRN
Svar óskast fyrir 26. apríl 2023. Farið yfir spurningar sem þarf að svara.
Fundargerð ritaði Rósa Marinósdóttir