Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 19. nóvember 2025 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Sigurður E. Sigurðsson forfallaðist.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá 12. og 14. nóvember 2025 lagðar fram og samþykktar.
- Fjármál og rekstur
Rætt um fjármál og rekstur og fjallað um stöðu áætlunar.
Framlag að fjárhæð 5,5 m.kr. til farsældar barna á árinu 2025.
Farið yfir gjaldskrá mötuneytis, hún uppfærð og samþykkt.
Rætt um heilsustyrk til starfsmanna. Samþykkt að heilsustyrkur fari í kr. 25.000,- pr. starfsmann m.v. 80 til 100% föstu starfi. Skerðist síðan í samræmi við stöðuhlutfall starfsmanns.
Ofangreindar breytingar taka gildi frá 1. janúar 2026.
Lögð fram leiðbeinandi tilmæli um greiðslu á orlofsfé þegar greidd er föst yfirvinna allt árið, dags. 19. ágúst 2025.
- Samskiptasáttmáli
Vilborg mannauðsstjóri fjallaði um samskiptasáttmála starfsmanna. Fram kom að hún var í sambandi við Attentus vegna málsins.
Samþykkt að skipa rýnihóp þvert á starfsstöðvar og eftir sviðum /svæðaskilgreiningu til að vinna að endanlegum samskiptasáttmála. Mannauðsstjóri og gæðastjóri munu hafa umsjón með gerð sáttmálans.
Áður geta allir starfsmenn HVE fá tækifæri til að koma með ábendingar og tillögur í gegnum forms.
- Gott að eldast – bókun stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis 27. okt. s.l
Lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Höfða frá 12. nóvember 2025.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:35
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.