Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 3. desember 2025 kl. 9:00.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

 

DAGSKRÁ

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar        

Fundargerð frá 26. nóvember lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál og rekstur

Fjallað um fjármál og rekstur.

Umræða var um rekstur og framlegð á skurðsviði.

 

  1. Tæki og búnaður

Rætt um óskir um tækja- og búnaðakaupa.

 

Rannsókn óskar eftir kaupum á hugbúnaði fyrir sjálfvirkni fyrir blóðkornateljara (statustæki), svo kallað autovalidation.  Í dag þarf lífeindafræðingur að samþykkja alla statusa en með þessari lausn samþykkir kerfið sjálfkrafa niðurstöður sem eru innan marka.

 

Umræða var um blóðgastæki á C-deild, það tæki er komið verulega til ára sinna.  Nýtt slíkt tæki kostar um 2 til 2,5 m.kr. með um 600 þús. kr. rekstrarkostnaði á ári.  Hins vegar kom fram að á rannsóknadeild væri nánast nýtt og vandað tæki sem getur annað þessu.  Fram kom að notkun tækis á C-deild væri á bilinu 5-8 skipti á mánuði.

 

Samþykkt að skoða tækjakaup vegna rannsókna í heild, t.d. kaup á tækjabúnaði sem mælir ákveðnar rannsóknir á staðnum sjálfvirkt.

 

Rætt um innleiðingu á Dalacare fyrir heimaþjónustuna á Hvammstanga.   Gerður verður samningur til eins árs vegna þessa.  Húnaþing vestra mun greiða 50% af þeim samningi. Árlegur kostnaður er um 500 þús. á ári.

 

Þá var fjallað um mögulega innleiðingu á Vöku og eða frekari innleiðingu á Heilsuveru.  Samþykkt að SES og HG skoði málið.

 

  1. Erindi frá hjúkrunarstjórnendum HVE Akranesi

Lagt fram erindi frá hjúkrunarstjórnendum á legudeildum og heilsugæslunni á Akranesi, dags. 18. nóvember 2025. Þar óska deildarstjórar eftir að ráðinn verði félagsráðgjafi við stofnunina.

Rætt um málefnið, þá skal því haldið til haga hér í fundagerð að ítrekað hafi komið beiðnir frá heilsugæslunni í Borgarnesi um sama atriði.

Samþykkt að fela HG að vinna greiningu á verkefnum/starfslýsingu fyrir félagsráðgjafa.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:07.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.