Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 16. janúar 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Farið yfir fundargerð síðasta funda og hún samþykkt.
- Rekstraráætlun 2019 og hagræðingarleiðir.
Fjallað um endanlega endurskoðaða rekstraráætlun fyrir næsta ár í samræmi við fjárlög 2019 og stöðu rekstrar árið 2018. Áfram verður unnið að hagræðingu innan ársins.
Þá var fjallað um breytingu á sértekjum vegna niðurfellingar á gjöldum af öldruðum og öryrkjum.
- Reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE.
Fjallað um reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE, en unnið er að gerð samkomulags við DK-hugbúnað um nýtt innheimtukerfi. Markmiðið er að einfalda innheimtu, tryggja meiri sjálfvirkni og bæta innheimtuhlutfall.
- Styrkur til líkamsræktar starfsmanna.
Rætt um styrk til líkamsræktar til starfsmanna. Á síðasta ári var árlegur styrkur til starfsmanna kr. 5.000,- Fram kom að það voru um 25 starfsmenn sem sóttu styrk á liðnu ári.
Samþykkt að styrkur til starfsmanna vegna íþróttaiðkunnar eða vegna sambærilegrar iðkunnar að fjárhæð kr. 8.000,- pr. ár. Þetta er til viðbótar þeirri fjárhæð sem stéttarfélög greiða.
- Breyting á gjaldskrá fyrir mötuneyti HVE og á útseldum mat.
Rætt um gjaldskrá fyrir mötuneyti HVE og fyrir útseldan mat.
Gjaldið fyrir hádegisverð núna er kr. 450,- og eftirréttur eingöngu kr. 200,- Samþykkt að leggja fram nýja gjaldskrá á næsta fundi með svæðisstjórum. Tekið verður mið af gjaldi hjá Landspítala. Gert er ráð fyrir að ný gjaldskrá taki gildi frá 1. mars n.k.
- Aðhlynningarstjórnarnámskeið.
Tveir hjúkrunarfræðingar fara á aðhlynningarstjóranámskeið hjá bráðsviði Landsspítalans 23.janúar í samræmi við boð þar um.
- Fundur með Landspítala og SAK – Framhald umræðu um liðskiptaaðgerðir.
Samþykkt að bjóða SAk og Landspítala á sameiginlegan fund í framhaldi af umræðu um liðskiptaaðgerðir föstudaginn 1. mars n.k.
- Mannauðsmál.
- Sálfræðiþjónusta 16 – 25 ára á Akranesi – uppsögn samnings.
- Tímaskráningarkerfi.
Rætt um málefnið og endurskoðun á reglum og samþykktum á vinnuskýrslum. Nýjar reglur munu verða teknar til skoðunar á næsta fundi svæðisstjóra.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:46
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.