Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 13. apríl 2022 kl. 9:00.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Marinósdóttir um Teams.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerðir frá 30. mars 2022 lögð fram og samþykkt.
- Covid, staðan og hraðpróf
Rætt um stöðuna á covid núna og töku hraðprófa. Nú eru 63 smitaðir á svæði HVE. Rætt um maskanotkun starfsmanna og sjúklinga. Fram kom að eftir páska þurfi ekki að nota maska nema vegna nálægðar við sjúklinga með öndunarfærasjúkdóma. Fundur verður með viðbragðsstjórn n.k. þriðjudag.
Þá var rætt um heimsóknartíma til sjúklinga. ÞBH mun hafa samráð við deildarstjóra á legudeildum um heimsóknir, en lagt verður upp með að hafa heimsóknartíma 1 klst. pr. dag, t.d. á milli 16 og 17. Undantekningar eru þó gerðar í einstaka tilfellum ef nauðsyn krefur.
Umræða var skimun ferðamanna, ekki er boðið upp á slíka þjónustu. Ferðamenn geta fengið hraðpróf á Keflavíkurflugvelli við brottför. Einnig var rætt um hvort skipulag skimun eigi að halda áfram, samþykkt að hætta skipulögðum skimunum frá og 1. maí. Aðeins verður boðið upp á sýnatökur vegna einkenna samkvæmt mati heilbrigðistarfsmanns. Gert inni á viðkomandi heilsugæslustöð.
Fjallað var um bólusetningar.
- Fjölgun liðskiptaaðgerða, undirbúningur og framvinda
Fjallað um skipulag og undirbúning vegna fjölgunar liðskiptiaðgerða. Núna er unnið að uppsetningu á skurðstofueiningu, gert af starfsmanni söluaðila með aðstoð okkar iðnaðarmanna. Nú vantar þvottavélarnar vegna tafa á framleiðslu.
Mönnun vegna fjölgunar á aðgerðum. Skipulagið var rætt frekar.
Fundur verður með framkvæmdastjórn, deildarstjórum og yfirlæknum skurðdeildar, svæfingadeildar, sjúkraþjálfunar, ásamt bæklunarlæknum. Stefnt er að þessum fundi í síðasta lagi 10. maí n.k.
- Flóttamenn frá Úkraínu
RM sagði frá að nú væru komnir um 35 flóttamenn á Bifröst og von er á 30 nú í dag. Borgarbyggð réð sjúkraflutningamann til að koma að þessu verki. Þá hefur verið skipaður stýrihópur um verkefnið. Rætt um málefnið.
- Grundarfjarðarbær – þjónusta HVE
Lagt fram tölvubréf frá bæjarstjórn Grundarfjarðar varðandi læknisþjónustu. JFJ og ÞB munu svara erindinu.
- Eftirfylgni stjórnsýsluúttektar – lagt fram
Rætt var um eftirfylgni stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á heilsugæslu á landsbyggðinni frá 2018.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:35
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.