Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 20. apríl 2022 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 13. apríl 2022 lögð fram og samþykkt.
- Fjárhagsleg málefni
Farið yfir fjárhagsleg málefni.
ÁÁ lagði fram drög að ársreikningi fyrir árið 2021. Fram kom að jákvæð rekstrarniðurstaða ársins nam um 35 m.kr. á árinu eða 0,6%, niðurstaðan var neikvæð um 49 m.kr. árið 2020, eða 0,9%. Heilsugæslusvið og hjúkrunarsvið voru með neikvæða afkomu á árinu en sjúkrasvið með jákvæða afkomu.
Þá var farið yfir rekstrarstöðuna fyrir tímabilið janúar til og með mars 2022. Umræða var um samskipti við ráðuneyti og fjársýslu vegna framvindu á greiðsluáætlun og framlögum ríkisins, en ekki hefur að fullu verið lokið frágang á þessum málum kerfislega.
- Undirbúningur fundar með HRN
JFJ fór yfir efni vegna stöðufundar sem verður 25. apríl 2022 með heilbrigðisráðuneytinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.