Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 27. apríl 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 20. apríl lög fram og samþykkt.

  • Sóttvarnaraðgerðir innan HVE frá 1. maí

Rætt um sóttvarnaraðgerðir innan HVE.  

Samþykkt að HVE taki upp sömu reglur og hjá Landsspítalanum.  Tekur gildi í lok vinnudags, kl. 16:00 föstudaginn 30. apríl.  

Þá var rætt um bólusetningar og sýnatökur.

  • Fundur með HRN 25. apríl

Farið efnislega yfir fund framkvæmdastjórnar með fulltrúum heilbrigðisráðuneytis frá 25. apríl s.l.

  • Fundur HVE með fulltrúa FSRE vegna framkvæmda

Fjallað um fund JFJ, Halldórs B. Hallgrímssonar og ÁÁ með Guðmundi Jónssyni hjá FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) þann 25. apríl s.l.  Á fundinum var farið yfir helstu framkvæmdir og endurbætur sem stjórnendur telja nauðsynlegar á næstunni.

Þar var einnig rætt um að húsnæði HVE á Akranesi verði teiknuð upp að nýju í stafrænan grunn og jafnframt þarf að setja upp endurskoðað „masterplan“ í samvinnu við arkitekta.  

  • Eftirfylgd vegna fjármagns til velferðartæknilausna. 

Rætt um beiðni HRN um upplýsingar um áætlaða notkun fjármagns til velferðartæknilausna fyrir 1. maí n.k. 

  • Mannauðsmál

Fjallað um læknamönnun í Borgarnesi, en þar er staðan slæm, læknir hefur sagt upp og lætur af störfum í sumar.  ÞB hefur verið með öll spjót úti að leita að læknum til starfa og búið að auglýsa. 

Umræða var um vaktþjónustu og skipulag læknisþjónustu á heilsugæslusviði. 

Samþykkt að hafa fund með yfirmönnum í heilsugæslunni þann 25. maí n.k. frá kl. 9:00 til 14:00.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40

Ásgeir Á. ritaði fundargerð