Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 10. febrúar 2021 kl 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 27. janúar lögð fram og samþykkt.
- Starfsemin í sumar
Fjallað um starfsemina í sumar. Fundað verður með yfirmönnum legudeilda nú í dag vegna fyrirhugaðra framkvæmda á deildunum. Þá er ráðgert að funda með starfsmönnum í Stykkishólmi vegna endurbóta þar.
Rætt um málefnið. Ágætt er að framkvæmdir við A og B-deildirnar verði á sama tíma fremur en í sitthvoru lagi eins og áður var gert ráð fyrir. Þó er ljóst að loka þarf fyrir töluverða starfsemi nú frá sumri og fram eftir ári.
Rætt var um afleysingar og þjónustu almennt á deildum og starfsstöðvum HVE nú í sumar. Í meginatriðum virðast málin í góðu lagi.
- Leghálsskimanir
Rætt um leghálsskimnar sem gerðar verða á heilsugæslustöðvum. Fram hafa komið óskir um búnaðarkaup.
Beiðni hefur komið frá HH um að halda reglulega samráðsfundi um þessar skimanir, Helga Hreiðars og Rósa Marinósdóttir munu taka verkefnið.
Fram kom hjá RM að búið er að setja upp möguleika á vefbókunum í heilsuveru vegna málsins. Eftir er að setja upp tímaslott fyrir hvern stað fyrir sig. Sýnin munu fara til Danmerkur í ræktun hvern föstudag frá Reykjavík, svörin eiga að berast eftir 2 vikur. Allar konur fá svar í Heilsuveru og þær konur sem þurfa frekari eftirfylgni munu fá símtal frá HH.
Samþykkt að setja frétt um málið á samskiptamiðla HVE og jafnvel í staðarblöðin.
Þá var fjallað um brjóstamyndatökur á svæðinu nú í mars.
Fundarmenn sammála um að stefna almennt að meiri notkunar á Heilsuveru fyrir skjólstæðinga okkar.
- Leghálsspeglanir
Rætt um leghálsspeglanir samkvæmt samkomulagi við Heilbrigðisráðuneytið. Gert var ráð fyrir tímabundnu átaki til að vinna niður biðlista. Áætlanir gerðu ráð fyrir að gerðar yrðu allt að 130 slíkar speglanir á mánuði í tvo mánuði, fékkst sérstök fjárveiting til að mæta þessu. Fram kom að líklega væru þessi viðmiðunarfjöldi 260 konur, eitthvað oftalinn eða byggir á gömlum upplýsingum, en við boðun þessara kvenna hafði töluverður fjöldi þegar fengið sína rannsókn á öðrum stöðum.
Frá 1. til 8. febrúar er búið að gera 24 kolposkopiur, m.v. þann fjölda yrðu þetta 84 slíkar rannsóknir í febrúar. En mögulega er fyrsta vika verkefnisins ekki í samræmi við framgang.
- Verkefnastjóri í skólaheilsugæslu
ÞBH fjallaði um stöðu verkefnisstjóra fyrir skólaheilsugæslu. En þróunarmiðstöðin hefur lagt til að heilsugæslur hafi verkefnisstjóra vegna skólaheilsugæslu.
Rætt um málið sem verður skoðað frekar hjá ÞBH og RM.
JFJ mun óska eftir fundi með þróunnarmiðstöðinni vegna málsins.
- Workplace samskiptamiðill innan stofnunar
Umræða um workplace sem samskiptamiðill innan stofnunarinnar.
Farið yfir kosti og möguleika workplace. M.a. kom fram að nú væru starfræktir yfir 80 hópar.
Samþykkt að halda áfram með workplace, enda benda notkunartölur til að nálægt 300 starfsmenn noti vefinn reglulega.
- Aðgerðaráætlun í líknarmeðferð – lagt fram til kynningar
Lögð fram fimm ára aðgerðaráætlun frá Heilbrigðisráðuneytinu fyrir árin 2021 til 2025 um líknarþjónustu.
Á Akranesi hefur verið starfandi líknarteymi um nokkurt skeið þó starfið hafi aðeins legið í dvala. Fundarmenn sammála um að ástæða sé til í ljósi þessarar áætlunar að tryggja áframhaldandi vinnu slíks teymis.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:36.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.