Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. september 2021 kl. 9:00 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Rósa Marinósdóttir er í orlofi.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðust fundargerðar.

Fundargerð frá 25. ágúst 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid, staðan.

ÞB fór yfir stöðuna í dag, nú eru 25 smitaðir á Vesturlandi og 42 í sóttkví.  Smituðum hefur þannig fækkað um 5 miðað við gærdaginn.  Þó bættust við þrjú smit í gær.  Af 25 smitum á Vesturlandi eru 21 á Akranesi.

Rætt um skimun og notkun hraðprófa.

Í síðustu viku tók gildi reglugerð um smitgát í skólum og á vinnustöðum, en markmiðið með henni er að fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví ef upp koma smit í skólum eða á vinnustöðum. Eingöngu þeir sem eru í hvað mestri nálægð við hinn smitaða þurfa að fara í sóttkví en aðrir í smitgát. Í smitgát getur einstaklingur mætt til vinnu eða í skólann með því skilyrði að mæta í skyndipróf á 1. og 4. degi og fylgjast vel með einkennum (einhverjar fleiri takmarkanir líka). Ef viðkomandi mætir ekki í seinni sýnatökuna á að segja hann í sóttkví, eftir áminningu, sem hann losnar þá úr með PCR-prófi á 7. degi.

Lagður var fram verkefnalisti frá embætti Landlæknis.

Rætt var um endurskoðun leiðbeininga og reglugerða.

Fram kom að á öllum stöðum okkar eru uppsettur tölvubúnaður, skanni og verið er að sækja rekka fyrir hraðprófinn.  ÞB segir að líklega verði hagstæðast verði að setja sama starfsmann til að fara á milli staða þar sem þarf til að taka að sér málefnið. Á minnstu stöðum okkar ætti að vera hægt að koma þessu inn í starf heilsugæslunnar, rætt um mögulegt skipulag.

  1. Heilsugæslusvið og fjármögnunarlíkan.

Rætt um rekstur, mönnun og þjónustu á heilsugæslusviði.  JFJ fór yfir stefnuskjal og ársáætlun HVE og samantekt á þjónustumagni á heilsugæslum. Þá fór hún yfir yfirlit sem fram kemur á samráðsgátt um skilgreiningu á opinberri þjónustu og jöfnun aðgengis.

Fjallað um mögulegar breytingar á vaktþjónstu og skipulagi.

Fundarmenn eru sammála um að nota skuli fjármögnarlíkan ráðuneytis til að setja upp rekstraráætlun og þjónustustig verði þannig í jafnvægi við líkan.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.