Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. nóvember 2017 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

  1. Bréf frá heilbrigðisráðherra um fjárveitingu til tækjakaupa, lagt fram til kynningar.

Lagt fram bréf heilbrigðisráðherra, dags. 16. október 2017 þar sem fram kemur að ákveðið hafi verið að veita HVE 6 m.kr. til tækjakaupa á árnu 2017.
Jafnframt var lagt fram bréf forstjóra HVE, dags. 26. október þar sem þakkað var fyrir framlagið, á það var bent að sótt hafi verið um framlag til endurnýjunar á dauðhreinsiofni að verðmæti 14 m.kr. Í bréfinu kom fram að bundnar væru vonir til að ráðuneytið fjármagni þau kaup að fullu. Fram kom að ofnin er 22 ára.

  1. Samantekt til Ríkiseigna um viðhaldsþörf og endurbætur á HVE vegna ársins 2018, lagt fram til kynningar.

Lögð fram samantekt JFJ, dags. 30. október 2017 um viðhaldsþörf og nauðsynlegar endurbætur á HVE.

  1. Samvinna milli heilsugæslustöðva, framhald umræðu.

Áframhaldandi umræða um samvinnu heilsugæslustöðva innan HVE.
Samþykkt sem fyrsta skref í aukinni samsvinnu um tilfærslu verkefna á milli starfsstöðva verður byrjað á því að færa lyfjaendurnýjanir frá Akranesi til Hólmavíkur og frá Ólafsvík til Grundarfjarðar. Tekur gildi í næstu viku, 6. til 10. nóvember. Linda mun setja upp verkferla vegna málsins.

Þá verður næsta skref í þessari samvinnu að færa lækni dagparta frá Grundarfirði til Ólafsvíkur til að jafna út fjölda sjúklinga pr. lækni á heilsugæslustöð.

Fjallað var um verkferla vegna rannsókna. Einnig fjallað um verkferla um notkun og bókanir á símatímum lækna og fleiri atriði sem snúa að almennu vinnulagi. Umræða var um tímabókanir lækna í gegnum heilsuveru.

  1. Fundur með yfirlæknum og deildarstjórum legudeilda og skurð- og svæfingadeildar á Akranesi sem haldinn var 31.október.

Fjallað um fund framkvæmdastjórnar með yfirlæknum og deildarstjórum legudeildar og skurð- og svæfingadeildar á Akranesi þann 31. október 2017. Þar var fjallað um stefnu, framtíð, fjármál, mannahald og þjónustu.
Miklar umræður voru um mannahald og viðmið, rætt um að stefna að utanaðkomandi úttekt á mönnun heilbrigðisstarfsmanna á deildum og starfstöðvum HVE.

  1. Fyrirhugaður fundur um samþættingu öldrunarþjónustu í Stykkishólmi 2.nóvember með fulltrúum velferðarráðuneytisins og Stykkishólmsbæjar.

Rætt um fyrirhugaðan fundu um samþættingu öldrunarþjónustu í Stykkishólmi þann 2. nóvember. Nú liggur fyrir að ráðast á í framkvæmdir í húsakynnum HVE í Stykkishólmi vegna flutnings hjúkrunarrýma á vegum Stykkishólmsbæjar í húsnæði HVE. Um er að ræða 18 rými. Jóhanna og Ásgeir munu sækja fundinn.

  1. Starfshópur um sérfræðilæknisþjónustu á heilbrigðisstofnununum, lagt fram til kynningar.

Lagt fram bréf Velferðarráðuneytis, dags. 13. október 2017 um skipun starfshóps sérfræðilæknisþjónustu á heilbrigðisstofnunum.
Hópinn skipa forstjórar Heilbrigðisstofnana Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands, Austurlands, Suðurlands og Suðurnesja ásamt forstjóra Landsspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

Hlutverk hópsins er að greina hvaða sérfræðilæknisþjónusta er þegar veitt innan heilbrigðisstofnanna, á hvaða formi slík þjónusta er veitt og hvernig samstarfi er háttað. Þá er hópnum falið að greina hvaða þjónusta væri æskilegt að veita á heilbriggsstofnunum landsins og hvernig væri best að tryggja aðgengi sjúklinga að þeirri þjónustu.

Skrifstofa heilbrigðsþjónustu í velferðaráðuneytinu mun leiða vinnuna.

  1. Tilnefning í starfshóp um fjarheilbrigðisþjónustu á landsvísu

Lagt fram bréf um Velferðarráðuneytis dags. 24. október 2017 um tilnefningu í starfshóp um framþróun í fjarheilbrigðisþjónustu á landsvísu.

Helstu verkefni hópsins eru greiningarvinna tengd framkvæmt í fjarheilbrigðisþjónustu, gerð tillagna um möguleg verkefni sem unnt er að fara af stað með fljótlega, samvinna innan og á milli stofnana.

Samþykkt að tilnefna Þórð Ingólfsson lækni og Kristínu Eggertsdóttur í hópinn með þeim fyrirvara að þau samþykki fyrir sitt leiti setu í hópnum. Ráðuneytið mun velja einn fulltrúa í hópinn.

  1. Mannauðsmál
  • Trúnaðarlæknir.
  • Staða hjúkrunarfræðings í starfsmannaheilsuvernd Norðuráls.
  • Þjónustu barnalæknis í ofvirknisteymi í Borgarnesi.

Rætt um mögulega þjónustu barnalæknis í ofvirknisteymis.

  • Staða yfirlæknis á heilsugæslunni á Akranesi.

Rætt um stöðu yfirlæknis, en fram kom að ÞB og ÁÁ ræddu við umsækjendur í síðustu viku. Umsóknir þeirra eru farnar fyrir stöðunefnd embættis landlæknis til mat á hæfi.

  • Umsókn um stöðu yfirlæknis Háls- og bakdeildar í Stykkishólmi.

Fjallað um fyrirspurn læknis um stöðu yfirlæknis á Háls- og bakdeild í Stykkishólmi, fram kom að viðkomandi hafi fundað með ÞB og ÁÁ um málið.

Umræða var um skipulag og þjónustu á deildinni, nú þegar hefur verið auglýst ný staða sjúkraþálfara við deildinna.

  • Staða deildarstjóra hjúkrunar á Hvammstanga.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:50.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.