Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. janúar 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

Fjármál og rekstur.
Fjallað um fjármál og rekstur HVE vegna ársins 2018 og 2019. JFJ lagði fram minnisatriði um helstu atriði liðins árs. Fram kom að á síðustu dögum ársins hafi borist aukafjárveitingar vegna ársins 2018. 98,8 m.kr. vegna styrkingar rekstrar skv. ákvörðun heilbrigðisráðherra, 23,7 m.kr. í fjárauka vegna lækkunar á sjúklingagjöldum og 71,5 m.kr. vegna launabóta.

Málþing um mönnun heilbrigðisstarfsmanna í dreifbýli.
Málþing í tengslum við Norðurslóðaverkefnið verður haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 15. janúar 2019. HVE býðst að senda fulltrúa á málþingið.

Verkefnið er afrakstur 7 ára alþjóðlegs samstarfs fimm landa Norðurslóðaáætlunarinnar, Noregs, Svíþjóðar, Kanada, Íslands og Skotalands.

Eftirlitsskýrsla Vinnueftirlitsins v. úttektar á HVE Akranesi 27. nóvember 2018.
Lögð fram eftirlitsskýrsla Vinnueftirlitsins í framhaldi af reglubundinni skoðun þann 27. nóvember 2018. Gerðar voru 15 athugasemdir.

Mannauðsmál.
Deildarstjóri Biðdeildar.
Fram kom að deildarstjóri Biðdeildar hefur sagt upp starfi sínu og mun taka við sem framkvæmdastjóri hjúkrunar á dvalarheimilinu Höfða Akranesi. Framkvæmdastjórn óskar henni velfarnaðar í nýju starfi og þökkum henni fyrir gott samstarf á liðnum árum.

Almenn mönnun.
Fjallað almennt um mönnun á svæðinu, fram kom að víða væri vöntun á fagfólki til starfa. Umræða var um stöðu veikinda á svæðinu. Þá kom fram að búið að leysa mönnun lækna í Grundarfirði næstu mánuði utan tvær vikur í marsmánuði, en unnið er að málinu áfram.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:35

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.

Fundargerð samþykkt á fundi þann 9. janúar 2019.