Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. mars 2022 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Vilborg Lársdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Rósa Marinósdóttir er í orlofi.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 16. febrúar 2022 lögð fram og samþykkt.
- Covid og staðan innan starfsstöðvar HVE
Rætt um covid stöðuna núna. Fram kom hjá ÞB að fjöldi smitaðara hafi aldrei verið eins mikill, á svæði HVE eru nú 916 greind smit. Sagði þetta farið að hitta starfsmenn okkar nokkuð, t.d. eru núna 13 starfsmenn af 21 frá vinnu í Hólmavík, nauðsynlegt var að fá utanaðkomandi aðstoð. JFJ sagði að starfið þar gengi ágætlega þrátt fyrir allt. Þar eru 5 sjúklingar af 7 smitaðir af covid. Starfsmenn fara að týnast inn aftur. Faraldurinn er almennt mikið á uppleið, t.d. eru nú 123 smit í Ólafsvík og 500 á Akranesi. Á Hvammstanga eru nú 5 sjúklingar smitaðir af 13. 1 sjúklingur er smitaður á Akranesi. Samtals eru því 11 sjúklingar smitaðir hjá HVE. Allir starfsmenn eru komnir til starfa aftur í Búðardal. Nokkuð mikil fjarvera hefur verið í Borgarnesi undanfarið, en starfsmenn eru að koma til baka þar. Í Stykkishólmi eru 6 starfsmenn frá vegna smita.
ÞB áréttar grímuskyldu innan húsnæðis hjá HVE.
- Undirbúningur að opnun hjúkrunarrýma í HVE Stykkishólmi
Fjallað var um undirbúning á opnun hjúkrunarrýma. Það liggur fyrir að HVE mun taka við rekstri þann 1. júní n.k. en það liggur fyrir að húsnæði okkar verður líklega ekki tilbúið fyrr en 1. september. Fram kom að öllum starfsmönnum sem bjóðast nýtt starf hafi verið sent bréf þess efnis.
- Mannauðsmál
- Stöður lækna
ÞB sagði frá því að auglýst staða heilsugæslulæknis hafi verið dreift eins og hægt er meðal lækna.
Þá kom fram að verið væri að hafa samband við svæfingalækna, en engin hefur sótt um þá stöðu.
- Fram kom að kynnismyndband verði sett á vefinn nú í dag.
- Lífeindafræðingur á Akranesi.
Búið er að ráða í stöðuna, viðkomandi mun byrja í haust.
- Sjúkraflutningar.
Auglýstar voru stöður í Ólafsvík og Akranesi, 5 sóttu um í Ólafsvík og 14 á Akranesi. Unnið er að ráðningum.
- Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni á Akranesi.
Ragnheiður Björnsdóttir hefur sagt stöðu sinni lausri frá og með 1. mars.
- Heilsuefling starfsmanna – Jóga.
Vilborg ræddi um tilboð um að bjóða upp á jóga fyrir starfsmenn.
- Önnur mál
5.1 Stykkishólmur.
Legudeildin í Stykkishólmi mun loka í 6 vikur í sumar.
5.2 Gjöf frá aðstandendum Sveins Sturlaugssonar.
Lagt fram þakkarbréf til Halldóru Friðriksdóttur og aðstandendum Sveins Sturlaugssonar vegna gjafar til lyflækningadeildar. En Sveinn Sturlaugsson hafði skömmu fyrir andlátt sitt ákveðið að gefa deildinni 4 hægindastóla úr leðri af gerðinni LC101.
5.3 Tækjakaup
Fjallað almennt um tækjakaup.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:35
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.