Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 2. júní 2021 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 19. maí 2021 lögð fram og samþykkt.
- Fjármál og rekstur, 4 mánaða uppgjör.
ÁÁ lagði fram og fjallaði um rekstrarstöðu HVE fyrir tímabilið janúar til og með apríl 2021. Fram kom að neikvæð rekstrarafkoma næmi nú 29,6 m.kr. án áunnis orlofs, eða 1,3%, niðurstaðan var 27,4 m.v. mars mánuð, eða 1,6%.
- Covid og bólusetningar.
Fram kom hjá ÞBH að stefnt væri að klára alla staði hjá HVE í næstu viku utan Akranes, en þá fást um 810 skammtar af Pfizer. Stefnt er svo að því að klára Akranes og aðra sem á munu vanta á okkar svæði í 3 viku júní með fyrri hluta bólusetningu.
Á okkar svæði er nú búið að bólusetja eða bólusetning hafin hjá 55% íbúa, hæsta hlutfall á landsvísu. Á landinu öllu hafa 171 þús. einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt. Nú hafa 63% kvenna 16 ára og eldri fengið að minnsta kosti eina bólusetningu og um 48% karla innan sama hóps. Fram kom að líklegasta skýringin væri sú að hlutfall kvenna í umönnunarstörfum er mun hærra en karla. Bólusetning mun ná til allra 16 ára og eldri.
- Mannauðsmál – mönnun í heilsugæslu o.fl.
Fjallað um mannauðsmál. Sérstaklega rætt um læknamönnun á heilsugæslustöðvum og umsóknir um auglýstar stöður.
Fram kom hjá ÞBH deildin í Stykkishólmi loki í júní.
Illa hefur gengið að ráða inn svæfinarhjúkrunarfræðing.
Rætt almennt um mönnun og afleysingar.
- QlikSense- Mælikvarðar úr starfsemi og stjórnendaupplýsingar, skoðun tilboðs
Rætt um tilboð og verktilögu frá Peizer vegna mögulegra kaupa og innleiðingar á QlikSense.
Samþykkt einróma að kaupa kerfið. ÁÁ og JFJ munu útfæra frekar hvaða kerfishlutar verða teknir núna.
- Ósk um skipan fulltrúa HVE í vinnustofunni Rétt geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað dagana 15.-16. júní nk.
Lagt fram bréf dags. 31. maí 2021 þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa HVE vegna vinnustofu um rétt til geðheilbrigðisþjónustu á réttum stað. Heilbrigðisráðuneytið hefur falið Landspítala að halda vinnustofu undir formerkjunum Rétt geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað. Þar munu fulltrúar notenda og fulltrúar allra þjónustuveitenda geðþjónustu koma saman.
Samþykkt að skipa Emil Einarsson yfirsálfræðig í verkefnið.
- Framkvæmdir
JFJ fór yfir þær framkvæmdir sem eru í gangi og eru að hefjast, bæði á Akranesi og Stykkishólmi.
ÞB sagði frá fundi hans og JFJ með fulltrúum Landspítala vegna mögulegarar skerðingar á þjónustu HVE Akranesi vegna þessa.
Þá sagði JFJ frá fundi hennar og ÁÁ með heilbrigðisráðuneytinu um íbúðarhúsnæði. Í megin atriðum er hlesta breytingin sú að það var lagt til að annað húsið á Dílahæð í Borgarnesi yrði selt og fengar tvær íbúðir þess í stað.
- Loftgæði og raki í húsnæði, drög að verklýsingu til kynningar
Lögð fram tillaga um verklagsreglu vegna viðbragða berist kvartanir vegna gruns um rakaskemmdir í vinnuumhverfi. Reglunar byggja á vinnulýsingu LSH.
- Ályktun félags sjúkrahúslækna – lagt fram
Lögð fram ályktun félags sjúkrahúslækna frá 27. maí 2021. En aðalfundur Félags sjúkrahúslækna sem haldin var í Kópavogi 27. maí 2021 hvetur stjórnvöld og heilbrigðisstofnananir til þess að tryggja að mönnun lækna sé fullnægjandi svo starfsálag sé ásættanlegt. Starfsumhverfi lækna þarf að styðja við fagleg vinnubrögð þannig að öryggi sjúklinga sjúklinga sé ávallt í öndvegi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40
Ásgeir Á. ritaði fundargerð