Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. september 2020 kl. 10:00 um teams með umsjónarmönnum staða.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir B. Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Elín Friðriksdóttir, Júlíana Einarsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson.

 

Dagskrá.

  1. Fjárhagsleg málefni.

Fjallað um fjárhagsleg málefni.  Fram kom að stjórnendur þurfa að leggjast ítarlega yfir mönnum á hverjum stað fyrir sig, ljóst er að launagjöld eru að fara umtalsvert yfir áætlun og þá þróun þarf að stöðva.  Lögð verður vinna við endurskoðun mannahalds á næstu dögum og vikum.

 

  1. Breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu.

JFJ fjallaði um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu  nr. 40/2007.  Fór yfir glærur yfir helstu breytingar.  Kjarni breytinganna felst í því að skilgreiningum á heilbrigðisþjónustu er skipt í þrjú stig, það er fyrsta stigs, annars stigs og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu í samræmi við skilgreinignar WHO.

  1. Fimm ára aðgerðaráætlun heilbrigðisstefnu 2021-2025.

JFJ lagði fram og fjallaði um aðgerðaráætlun heilbrigðisstefnu fyrir árin 2021 til 2025.

  1. Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar, staðan og fundur í september.

Fjallað um fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar.  En stefnt er að því að heilsugæslan verði fjármögnuð að mestu leiti í gegnum þetta líkan. Þann 23. september n.k. verður kynning frá embætti Landlæknis um málefnið.   JFJ fór yfir samantekt á efni sem lagt hefur verið fram frá heilbrigðisráðuneytinu.

 

  1. Betri vinnutími – kynning á verkefni. Júlíana Einarsdóttir.

JE fjallaði um betri vinnutíma fyrir dagvinnufólk.   Sagði að væntanlegur starfshópur sé tilbúinn, samtals verða 8 aðilar í hópnum, þ.e. 4 frá stofnun og 4 frá starfsmönnum.

Fyrsti fundur er fyrirhugaður í byrjun næstu viku þá munum við fá aðgang að tengilið frá kjara- og mannauðssviði fjármálaráðuneytis.  Fram kom að erfiðlega hafi gengið að fá starfsmenn í starfshópinn.

Eftirtaldir aðilar eru í starfshópnum:

Frá HVE, Júlíana Einarsdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórgunnur Stefánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Frá Starfsmönnum, Björk Elva Jónasdóttir frá FÍH, Kristný Lóa Traustadóttir frá BSRB, Lucia María de Korte frá BHM og Fíður Ósk Kristjánsdóttir frá ASÍ.

 

  1. Önnur mál.

Stykkishólmur, Hrefna fjallaði um væntanlegar framkvæmdir í Stykkishólmi, en nú væri verið að meta þau tilboð sem borist hafa, tveir aðilar eru í skoðun vegna málsins.

Hvammstangi, Aldís fjallaði um gjaldskrá vegna Covid testa og mótefnamælinga.

Búðardalur, Jóhann sagði frá framkvæmdum á Sunnubraut.

Hólmavík, Jóhann ræddi um mannahald á öldrunardeildinni, vantar tilfinnanlega hjúkrunarfræðing á deildina.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:00

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.