Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. nóvember 2022 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Rósa Marinósdóttir kom á fundinn um Teams.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 26. október 2022 lögð fram og samþykkt.
- Rekstararáætlun, staðan
Fjallað um rekstraráætlun fyrir næsta ár, fram kom að líklega séu 2 til 3 vikur í að áætlun verði að fullu tilbúinn. En fram kom að samkvæmt áætlunardrögum má gera ráð fyrir að fjárvöntun næsta árs muni nema allt að 290 m.kr., raunar í takti við um 270 m.kr. áætlaðan halla á þessu ári ef ekki fæst aukið fjármagn.
- Að loknum fundi með HRN
Farið efnislega yfir fund framkvæmdastjórnar með embættismönnum heilbrigðisráðuneytis, mánudaginn 31. október s.l.
JFJ fór yfir bókaðar ákvarðanir sem komu frá ráðuneyti.
- Innviðir 2020 – eftirfylgni og upplýsingaöflun um stöðu aðgerða
Lagt fram erindi HRN, tilvísun í mál HRN20010181, um innviði og öryggi heilbrigðisþjónustu á svæði HVE. Ráðuneytið óskar eftir því að HVE fari yfir stöðuskjal frá áramótum 2021/2022 og uppfæri miðað við stöðuna í dag.
- Erindi frá Dalabyggð- ósk um samþættingu heilbrigðisþjónustu í Dalabyggð
Lagt fram erindi frá Dalabyggðar og stjórnar Silfurtúns dags. 22. september 2022. þar kemur fram að stjórn Silfurtúns og sveitarstjórnar Dalabyggðar óskar eftir því að heilbrigðisráðherra samþykki að ríkisvaldið yfirtaki rekstur heimilisins f.o.m. 1. janúar 2023 og noti tækifærið og samþætti starfssemi Silfurtúns við heilsugæsluna í Búðardal.
Dalabyggð hefur áður óskað eftir því beint til HVE að stofnunin taki yfir reksturinn, bent er á nýlegt fordæmi þar sem ráðuneytið hafi falið HVE að taka yfir dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi frá 1. júní 2022.
JFJ fór yfir efni fundar hennar með Birni Bjarka Þorsteinssyni þann 1. nóvember 2022.
Rætt var um málefnið, fundarmenn sammála um að samstarf væri af hinu góða og framkvæmdastjórn er tilbúinn að skrifa undir sameiginlega viljayfirlýsingu þess efnis. Jafnframt þurfi að taka Hólamvík og Reykhóla með í slíkri vinnu. Áréttað verður í viljayfirlýsingunni að HVE treysti sér ekki til að taka við rekstri slíks heimilis m.v. það fjármagn sem ríkið áætlar í málaflokkinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.