Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 3. mars 2021 kl. 9:00 um teams.

Mættir:   Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 17. febrúar lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fagráð HVE

JFJ fór yfir skipun í 5 manna fagráð.  12 aðilar buðu sig fram í ráðið.  Nefndi að tryggja þurfi svæðaskiptingu og taka tillit til kynjaskiptingar.

Í reglugerð um skipun í fagráð heilbrigðisstofnana segir:  Forstjórar heilbrigðisstofnana skipa fagráð sem í sitja að minnsta kosti einn fulltrúi lækna, einn fulltrúi hjúkrunarfræðinga og einn fulltrúi annarra heilbrigðisstétta sem eru í föstu starfi innan heilbrigðisstofnunarinnar. Forstjórum stærri heilbrigðisstofnana er þó heimilt að skipa allt að sjö fulltrúa í fagráðið og skal við skipunina gæta jafnræðis milli fagstétta starfandi heilbrigðisstarfsmanna innan stofnunarinnar.

Forstjóra ber að leita álits fagráðs um mikilvægar ákvarðanir sem varða heilbrigðisþjónustu og skipulag heilbrigðisstofnunarinnar en er þó ekki bundinn af álitinu.

Fagráð skal kjósa sér formann og annan til vara.

Fagráð skal setja sér starfsreglur sem staðfestar skulu af forstjóra.

Formaður skal í samráði við forstjóra boða til upplýsinga- og samráðsfunda eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári.

Skipun í fagráð er tímabundin til 3 ára.

Samþykkt að leggja til að skipa eftirtalda:  Katharina Schumacher læknir, Ragnheiður Helgadóttir hjúkrunarfræðingur, Patryk Zolobow sjúkraflutningamaður, Pétur Ingi Jónsson lífeindafræðingur og Lucia De Korte sjúkraþjálfari.  JFJ mun hafa samband við þessa aðila.

 

  1. Bréf frá starfsmanni

Lagt fram erindi Klöru B. Gunnarsdóttur heilsbrigðisgagnafræðings og nú deildarstjóra í afleysingum, dags. 22. febrúar 2021.

 

  1. Öryggisnefnd HVE – skipan síðasta fulltrúa

Nú hefur verið skipaður 6. aðilinn í öryggisnefnd, þ.e. Helga Jóna Björgvinsdóttir sjúkraliði, öryggistrúnaðarmaður.   JFJ mun senda öllum aðilum skipunarbréf nú í dag.

 

  1. Samningur um kaup á kemíutæki á rannsóknadeild HVE

Gerður var 5 ára samningur um kaup á Vitros xt7600 kemíutæki við Fastus fyrir rannsóknadeild HVE.

 

  1. Fundur með sveitarstjórum á Snæfellsnesi

Fundur sem fyrirhugaður var með sveitarstjórnum á Snæfellsnesi féll niður í dag að beiðni sveitastjórna.  Lagt verður til að hafa fundinn n.k. miðvikudag.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:22

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.