Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 3. júní 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 27. maí 2020 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Útboð í framkvæmdir á C-húsi HVE Akranesi.

Fjallað um útboð í framkvæmdir á C-húsi HVE Akranesi.  JFJ lagði fram tilboð í verkið, bjóðendur voru eftirtaldir:

E. Sigurðsson ehf                              99.471.323,-

Ístak hf.                                             121.333.183,‐

Skagaver ehf.                                      93.749.045,‐

Kostnaðaráætlun: 57.645.440 kr (m/vsk 73.351.575 kr.). Lægsta tilboð er því 27,8% hærra en kostnaðaráætlun og það hæsta 65,4% yfir kostnaðaráætlun.

 

  1. Sérnámsstaða hjúkrunarfræðings á heilsugæslu HVE á Hvammstanga

ÞBH og RM fjölluðu um sérnámsstöðu hjúkrunarfræðings HVE á Hvammstanga.  

 

Fundur með umsjónarmönnum staða hefst kl 10:00

Mættir:  Aldís Olga Jóhannesdóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Berit Sveinbjörnsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson. 

 

Dagskrá

  1. Jafnlaunavottun HVE – Vilborg.

VB fjallaði um jafnlaunavottun, en HVE fékk vottunina þann 19. maí 2020 sem gildir til 18. maí 2023.

 

  1. Kynning á niðurstöðum úr Stofnun ársins – Vilborg.

VB hélt kynningu á niðurstöðum á stofnun ársins, fram kom að svarhlutfall frá HVE væri um 40%, en lágmarkið eru 35% til að fá út sundurliðaðar niðurstöður. Í heild sinni eru niðurstöðu áþekkar og í fyrra, en þó eru niðurstöður aðeins betri en var þá, sértaklega hvað varðar stjórnun, þar er nokkur hækkun og HVE er komið yfir aðrar heilbrigðisstofnanir og allar stofnanir.  

 

  1. Fjarheilbrigðisþjónusta á HVE.

Hulda Gestsdóttir fulltrúi HVE í sérfræðihóp um fjarheilbrigðisþjónustu kom á fundinn og fór yfir helstu áætlanir og verkefni tengd fjarheilbrigðisþjónustu.  Hópurinn er þverfaglegur af öllu landinu og með aðkomu heilbrigðisráðuneytis og Embætti landlæknis.

Fram kom hjá HG að núna hafi hún tekið saman upplýsingar og kortlagt frá öllum stöðum hvað hafi verið gert og hvert starfsmenn vilja stefna í þessum efnum.   Nefndi sérstaklega að Covid hafi breytt miklu í þessu sambandi, en nú er hægt að nýta sér myndþjónustu í gegnum Sögu og Heilsuveru.  Fjallaði um greiningar og skráningar í tengslum við væntanlegt greiðslulíkan fyrir heilsugæslunni.  Lagði til að hér á HVE verði stofnað teymi eða stýrihópur til að kortleggja og áætla notkun.

Rætt ítarlega um málið, fundarmenn sammála um að skipuleggja skuli betur framhaldið í fjarheilbrigðisþjónustu.

 

  1. COVID-19 og áhættumat vegna komu ferðamanna.

ÞB fjallaði um áhættumat vegna væntanlegra komu ferðamanna þegar landið verður opnað þann 15. júní n.k. með skilyrðum um vottorð um mótefni eða smit verði mælt við komuna til landsins.

 

  1. Fyrirhugaðar breytingar á texta í ráðningasamningi og rafrænar undirskriftir – Vilborg.

VB fjallað um breytingar á texta í ráðningasamningum og rafrænar undirskriftir, þannig munu ráðningarsamningar verða aðgengilegir á starfsmannahaldskerfinu.

 

 

Fundi slitið kl. 11:55

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.