Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 3. nóvember 2021 kl. 2021 kl. 9:00

 

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Undirbúningur fyrir fund með ráðuneytinu þann 10. nóvember 2021.

Áætlaður fundartími með ráðuneytinu er aðeins ein klukkustund.  Fundurinn verður um Teams.

Farið yfir málefnin.  

Rætt um rekstur og stöðuna í dag, en fram kom að rekstrarstaðan nú væri erfið og fyrirséður halli í lok árs á bilinu 150 til 200 m.kr. m.v. óbreytt fjárlög.  En stór hluti af þessum halla skýrist af kostnaði vegna Covid, kjarasamningshækkunum sem ekki hefur verið gert ráð fyrir og styttingu vinnuvikunar.

Farið yfir starfsáætlun stofununar og stefnu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:20.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.