Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. febrúar 2026 kl. 9:00.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.   Sigurður E. Sigurðsson er forfallaður.

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 28. janúar 2026 lögð fram og samþykkt.

  • Fjárlög 2026

Rætt um fjárlög fyrir árið. 

Fram kom að samkvæmt drögum af rekstraráætlun væri í það minnsta 500 millj. kr. vöntun fyrir sömu starfsemi og þjónustu og var á síðasta ári, sem er jafnframt í takti við rekstrarhalla síðasta árs.  Stofnunin hefur aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins áskorunum. 

Þá kom fram að það hafi verið fundur með heilbrigðisráðuneytinu s.l. mánudag vegna stöðunnar.  Þar var rætt um hvort forstjóri ætti að senda 35 greinar bréf til ráðuneytis vegna upplýsingaskyldu um frávik í rekstri.   Beðið er eftir svörum frá ráðuneyti vegna málsins.  

  • Jafnréttisáætlun.

VL fjallað um jafnréttisáætlun og fór yfir breytingar á áætluninni, sérstaklega mælikvörðum.

Áætlunin samþykkt.    Þá kom fram að jafnlaunaúttekt verði 17. mars.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:25

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.