Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. mars 2026 kl. 9:00.

 

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.   Hulda Gestsdóttir er í orlofi.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 25. febrúar 2026 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál og rekstur.

Fjallað um fjármál og rekstur, staðan er en sú sama og verið hefur, ekki hefur fengist fjármagn til að mæta kjarasamningum síðasta árs og áætlunar gerir því ráð fyrir um 700 m.kr. halla á þessu ári m.v. þá þjónustu sem veitt hefur verið til þessa. Farið var yfir útreikninga vaktaálags og vaktaviðmiða á heilsugæslum HVE í fjármögnunarlíkani.

Ítarlega rætt og farið yfir fjármögnunarlíkan HVE.   Fundur verður með hagaðilum vegna málsins nú í dag.

 

  1. Húsnæðismál

JFJ fjallaði um húsnæðismál.  Fór yfir þær framkvæmdir sem lengi hafa verið fyrirhugaðar á fyrstu hæð og gömlu e-deildar á Akranesi.   Það verkefni var sett í forgang fyrir rúmum þremur árum síðan af heilbrigðisráðuneyti.  Rætt var um þarfagreiningu og frumathugun vegna heilsugæslunnar á Akranesi en gert er ráð fyrir að um sé að ræða 1.500 til 1.700 fermetra húsnæði.  Fjallað var um nýtingu þess húsnæðis sem heilsugæslan er í núna.   Þá var rætt um húsnæðismál og endurbætur í Borgarnesi.

 

  1. Mönnun sérfræðilækna.

SES fjallaði um mönnun sérfræðilækna á sjúkrahúsinu á Akranesi. Fram kom að mönnun á kvennadeild, svæfingadeild og lyflækningadeild væri orðin mjög brothætt vegna manneklu.  Þá var umræða um áunninn frí vegna vakta.   Fundarmenn sammála um  að vaktarfrí verði ekki afskrifuð ef læknar okkar komist ekki í frí vegna manneklu.

Ítarlega rætt um málefnið.

 

  1. Skýrsla sýkingarvarnarnefndar fyrir árið 2025.

Lögð fram skýrsla sýkingarvarnarnefndar fyrir árið 2025.

Framkvæmdastjórn þakkar fyrir greinargóða skýrslu.

 

  1. Sjúkraþjálfari – stoðkerfismóttaka á heilsugæslu – erindi frá yfirlækni heilsugæslunnar á Akranesi.

Lagt fram og fjallað um erindi yfirlæknis heilsugæslunnar á Akranesi um stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara á Akranesi.

Fram kom að eins og staðan er núna þá er ekki gert ráð fyrir stafsmanni á þessu sviði í fjármögnunarlíkani heilsugæslunnar.

 

  1. Ársfundur HVE og stjórnendadagur.

Rætt um ársfund HVE og stjórnendadaga.

Samþykkt að stefna að því að halda ársfund 6. maí 2026.

Samþykkt að halda stjórnendadag þann 22. apríl n.k., gert er ráð fyrir dagskrá allan þann dag.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:35

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.