Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagaskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 27. apríl 2022 lögð fram og samþykkt.

  1. Jafnlaunavottun – rýni.

VL fór yfir rýni jafnlaunavotturnar í samræmi við staðal jafnlaunavottunar.

Fram kom að mikil bæting hafi verið á starfaflokkum milli ára og sem sjá má í lækkun frávika, fram kom að HVE hafi náð betri tökum á skipulaginu.  Frávik á milli kynja var undir 5% markmiðum.  Eina athugasemd úttekktaraðila er að æskulegt væri að formgera ákvarðanir um viðbótargreiðslur / viðbótarlaun.

Fram kom hjá VL að niðurstaða launagreiningar verði kynnt á WP á næstu dögum.

Tillaga er um jafnlaunamarkmið fyrir árið 2023 er um að stefnt verði að því að óútskýrður kynbundinn launamunur verði 0% og frávik ekki meiri en 5%, fylgni milli starfaflokkunar og launa (R2) verði hærra en 94%.

  1. Bakvaktir sjúkraflutninga á Akranesi

Fjallað um mögulega aukningu á bakvöktum sjúkraflutinga á Akranesi.

Fram kom að eins og staðan er núna þá eru tvöfaldar bakvaktir frá kl. 16:00 á föstudögum til 8:00 á mánudagsmorgni.   Á virkum dögum hafa því menn verið til taks þegar vakt fer í flutninga Reykjavíkur og á aðra staði án þess að fá greidda bakvakt fyrir. Menn hringjast á til að redda öðrum á vakt í fjarveru bakvaktar til þess að tryggja viðbragð, þetta skipulag eru sjúkraflutningamenn svo að gera í útköllum sínum.  Ljóst er að svona skipulag er algjörlega á skjön við kjarasamninga.

Áætlaður kostnaður vegna þessa getur numið um 10 til 12 m.kr. á ársgrundvelli, eða allt að 7 til 8 m.kr. á þessu ári.

Samþykkt að taka upp tvöfalda vakt til næstu áramóta, frá 16. maí eða fyrr.  Sá tími verður svo notaður til að endurskoða fyrirkomulag sjúkraflutninga á Akranesi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:37

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.