Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. desember 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 13. nóvember 2019 lögð fram og samþykkt.

  1. Að loknum stjórnendadögum

Fjallað um stjórnendadaga sem haldnir voru 27. og 28. nóvember s.l.   Fram kom að almennt þykja þessir dagar hafa tekist vel.   Rætt var um hvað beri að gera í framhaldi af þessum dögum.

  1. Ársáætlun 2019

Rætt um ársáætlun HVE fyrir árið 2019.   Áætlunin var send miðvikudaginn 20. nóvember 2019.  Fram kom í umræðum að áætlunin er mjög knöpp og gera þarf átak í lækkun launakostnaðar, sérstaklega með tilliti til yfirvinnu og veikindafjarvista.

  1. Mannauðsmál
    1. ÞBH fjallaði um mönnun ljósmæðra á kvennadeild.
    2. Rætt um lokun biðdeildarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.