Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 5. apríl 2023 kl. 9:30 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í orlofi.
Dagskrá.
- Bréf frá stjórn Brákahlíðar vegna uppsagnar þjónustusamnings
Lagt fram bréf frá stjórn Brákahlíðar vegna uppsagnar HVE á þjónustusamningi við Brákarhlíð, dags. 29. mars 2023.
Rætt um málið, fram kom að uppsögn samnings er vegna læknaskorts í Borgarnesi, því getur HVE ekki ábyrgst fullnægjandi þjónustu.
JFJ mun svara stjórn Brákarhlíðar efnislega.
- Mönnunarmál
- Erindi frá deildarstjóra lyflækningadeildar vegna mönnunar í sumar
Rætt um erindi frá deildarstjóra lyflækningadeildar vegna slæmrar mönnunar hjúkrunarfræðinga nú í sumar, fram kom hjá ÞBH að nú í sumar sé mjög erfitt að fá afleysingu, nú vanti í það minnsta tvö stöðugildi hjúkrunarfræðinga á deildina almennt.
Fundað verður með stjórnendum legudeilda nú í dag vegna málsins.
- Önnur mönnunarmál
ÞBH sagði frá heimsókn sinni til Ólafsvíkur vegna mönnunar þar og í Grundarfirði. Einnig var rætt um mönnun í Stykkishólmi.
- Samþykkt fundargerðar
Fundargerð yfirfarin og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.