Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 6. mars 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá 20. og 27. febrúar 2019 lagðar fram og samþykktar.
- Geðheilsuteymi – Fjárveiting og undirbúningur.
Rætt um fund um geðheilsuteymið í dag. En á fjárlögum þessa árs var gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu með það að markmiði að koma á fót geðheilsuteymum og fjölga stöðugildum sálfræðinga innan heilsugæslunnar. En fram hefur komið að heilbrigðisráðherra úthlutaði HVE 46 m.kr. til verkefnisins. Heildarfjárveiting ráðherra voru 630 milljóna króna.
- Stjórendafundur 10. apríl – undirbúningur.
Rætt um skipulag á stjórnendarfundi sem haldinn verður á Hótel Hamri þann 10. apríl n.k. frá kl. 9:30. Helsta málefni fundarins verður endurskoðun starfsáætlunar HVE. Jafnframt verður sett upp fræðsluerindi fyrir fundarmenn. Gera má ráð fyrir að fundarmenn verði á bilinu 35 til 40.
- Sjúkrabílaskýli á Akranesi.
Fjallað um fund JFJ og ÁÁ þann 4. mars í heilbrigðisráðuneyti með fulltrúum ráðuneytis, Framkvæmdasýslu ríkisins og Ríkiseigna um nýbyggingu sjúkrabílaskýlis á Akranesi. En fram kom að stefnt verði að útboði á næstu vikum með það að markmiði að hefja framkvæmdir í sumar. Verkið verður unnið af Framkvæmdasýslu ríkisins með aðkomu Ríkiseigna og HVE.
- Frá nefndarsviði Alþingis – frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar (sálfræðimeðferð), 513. mál – lagt fram.
Lagt fram erindi frá nefndarsviði Alþingis um frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar vegna sálfræðimeðferða.
- Endurskoðun funda framkvæmdastjórnar.
Rætt um endurskoðun á fundum framkvæmdastjórnar, svo sem dagskrárliði, fjöldi funda og þess háttar. Samþykkt að fækka fundum og stefna frekar að því að einhverjir fulltrúar fari oftar á starfsstöðvarnar.
- Mannauðsmál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.