Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 6. maí 2020 kl. 9:00 á Akranesi um Teams.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Rósa Marinósdóttir og Vilborg Lárusdóttir.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 29. apríl 2020 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid-19 – staðan.

Fjallað um stöðu Covid-19 í dag. Fram kom að um helgina hafi eitt nýtt sýni reynst jákvætt og eru því fjöldi greindra orðnir 74 á starfssvæði HVE.  Í skimun á Akranesi voru tekin um 736 sýni, í Borgarnesi voru tekin um 700 sýni, af þessum 1.434 sýnum var því einn jákvæður.

Á landsvísu eru 1.799 greindir.  Fyrirhugað er að taka mótefnasýni af fólki þegar fólk kemur í rannsókn. Skimun mun fara fram á Snæfellsnesi í samstarfi með Íslenskri erfðagreiningu, í Ólafsvík og Stykkishólmi í dag og á morgun, en föstudag í Grundarfirði.

  1. Ársreikningur.

ÁÁ lagði fram og fjallaði um ársreikning HVE fyrir árið 2019.  Fram kom að jákvæði niðurstaða ársins nam 42,9 m.kr. á árinu, eða 0,8% af tekjum, helgast af 106 m.kr. auknu rekstrarframlagi á síðustu dögum ársins, þetta gerir það að verkum að höfuðstóll er nú orðin jákvæður og nemur nú 16,8 m.kr. Niðurstaða hver sviðs er að heilsugæslusvið er með jákvæða niðurstöðu sem nemur 14,5 m.kr., sjúkrasvið er jákvætt um sem nemur 65 m.kr. en hjúkrunarsviðið er neikvætt um sem nemur 36 m.kr.

  1. Ársskýrsla 2019.

JFJ lagði fram og fór yfir handrit að ársskýrslu HVE fyrir árið 2019. Óskað eftir að fundarmenn færu vel yfir efnið og kæmu með ábendingar um úrbætur og leiðréttingar.

  1. Mál lagt fram – 701 mál.

Lagt fram til kynningar mál nr. 701 um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (stjórn og eftirlit).

  1. Verkefni mannauðsstjóra.

Rætt um helstu verkefni mannauðsstjóra.  VL fjallaði um helstu verkefnin.  Hjá henni kom fram að á næstu dögum mun koma yfirlit vegna stofnunar ársins.  Sagði frá vinnu sinni með nokkrum deildarstjórum vegna starfsmannasamtala. Ræddi um viðverumælingar og veikindafjarvistir, sérstaklega Bradfordkvarðann, mun halda kynningu á fundi þann 20. maí n.k. með svæðisfulltrúum.  Farið yfir rafrænar undirskriftir og vottun slíkra lausna.

Rætt um starfsmannastefnuna og væntanlega endurskoðun hennar.

  1. Starfsmannastefan – Reglur um lífeyristöku.

Rætt um breytingar í starfsmannastefnu vegna starfsloka og lífeyristöku. Fram kom að vegna óska Sjúkraliðafélags Íslands verði breyting gerð þannig að ekki verði tímamörk eins og var.  Framvegis verði fólk í 49,9% starfi í stað 49% starfs eins og verið hefur.

Fundarmenn sammála um að fólki geti staðið til boða, verði því við komið vegna starfseminnar, að fara í 49,9% starfshlutfall. Til þess að hefja lífeyristöku þar starfsmaður að segja upp starfi sínu.  Þar sem um nýtt starf er að ræða verða uppsöfnuð frí gerð upp við þessa breytingu.

  1. Mannauðsmál.
    • Yfirlæknisstaða á Snæfellsnesi

Rætt um hvort auglýsa eigi aftur eftir yfirlækni á Snæfellsnesi.  En fram kom að ekki hafi borist nein umsókn eftir fyrri auglýsingar.  Ágætlega hafi þó gengið að fá lækna í verktöku eins og verið hefur.

  • Sérnámsstöður á heilsugæslunni á Akranesi.

Fram kom hjá ÞB að komið hafi þrjár fyrirspurnir um sérnámsstöður á Akranesi.

  • Krabbameinsskoðanir og mæðravernd.

Fjallað um mögulegar breytingar á krabbameinsskoðunum.   ÞB skoðar málið.

Þá var rætt um hvort mögulega væri betra að taka hópskoðanir í stað þess að hafa dreift.

  • Staða sjúkraþjálfara í Stykkishólmi.

Rætt um stöðu sjúkraþjálfara í Stykkishólmi, en þar er einn að hætta.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:50

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.