Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 6. nóvember 2019, kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðust fundargerðar.

Fundargerð frá 25. október 2019 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Rekstraráætlun og stefnuskjal 2020

Rætt um og farið yfir rekstraráætlun og stefnuskjal fyrir árið 2020.

 

  1. Niðurstaða útboðs á röntgentæki fyrir myndgreiningadeild.

Niðurstaða er komin í útboð á röntgentækjum fyrir myndgreiningardeild. Tilboð bárust frá þremur aðilum. Hæstu heildareinkunn fær tæki frá Helthco.  Fram kom að kæruferli tilboða væru 20 dagar frá 6. nóvember að telja.

 

  1. Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu.

Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu um styrk til gæðaverkefna.

Tilgangur styrkjanna er að stuðla að umbótum, nýbreytni og auknum gæðum í heilbrigðisþjónustunni.

Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni sem eru í samræmi við heilbrigðisstefnu til 2030 og/eða tengjast innleiðingu áætlunar Embættis landlæknis um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019–2030. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember næstkomandi.

  1. Mannauðsmál

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.