Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 7. janúar 2025 kl. 9:00.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannsdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.  Sigurður E. Sigurðsson er forfallaður.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 17. desember 2025 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Litið yfir liðið ár.

JFJ fór yfir liðið ár, sýndi slæður þar sem farið var yfir helstu málefni í hverjum mánuði.

 

  1. Fjármál og rekstur.

Fjallað um fjármál og rekstur.

Þá fékkst 4 m.kr. framlag nú í byrjun árs vegna liðins árs til tækjakaupa.  Annars vegar fyrir flutningskassa nýbura og hins vegar hjartastuðtækis vegna handlækninga-og skurðdeildar.

 

Þá fór JFJ yfir þau tæki sem keypt voru á síðasta ári ásamt tækjum sem fengust að gjöf.

 

  1. Viðverustefna HVE.

VL fór yfir viðverustefnu HVE.

Rætt var um að vinnuskil safnist ekki upp nema þá að ákveðnu marki, sett verður eina regla yfir alla.  Fara þarf sérstaklega yfir þetta málefni. Umræða var um vottorð og skráningu þeirra fyrir starfsmenn í gegnum 50-skills.

 

  1. Þjónustukönnun SÍ og Ríkisstofnana.

Farið yfir þjónustukannaninnar.  Samkvæmt þeim er almenn ánægja með þjónustu og viðmót að mati sjúklinga og aðstandenda.

 

  1. Minnisblað vegna samþættrar þjónustu á Hvammstanga, lagt fram.

Lagt fram minnisblað um verkefnið „Gott að eldast – Snælda heimaþjónusta“ á Hvammstanga, dags. 2. janúar 2026.

Rætt um málefnið.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.