Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 7. október 2020 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá 16. september og 30. september lagðar fram og samþykktar.
- Gæðauppgjör 2019 – lagt fram og kynnt.
Lagt fram gæðauppgjör 2019 fyrir Embætti landlæknis. JFJ fór yfir uppgjörið.
- COVID -19. Breytingar síðustu daga, flutningur sjúklinga frá Landspítala og vinnugleði.
Rætt um stöðuna í dag og síðustu daga. Ekki orðin stór breyting á tölum frá því í gær. Í heild sinni eru 46 í sóttkví og 21 greindur.
Fram kom að búið væri að loka HVE á Akranesi og í Stykkishólmi. Grímunotkun innan HVE er skylda.
Rætt um beiðni Landsspítala og ráðuneytis um að HVE tæki við sjúklingum frá Landsspítala. Skoðað var að bæta við 4 rúmum á handlækningadeild og 2 rúmum á lyflækningadeild, eða 6 sjúklingum samtals. Niðurstaðan er því sú að opna að nýju nokkur pláss á „biðdeildinni“. Þetta mun kalla á aukna mönnun um sem nemur 7 stöðugildum þennan tíma. Þura er að skoða að fá starfsmenn sem nýlega hafa látið af störfum. Stefnt að er opna rýmin í næstu viku.
Tekið verður yfirlit um fjölda þeirra sjúklinga sem almennt koma hingað frá Landsspítala.
Rætt var um móttöku nema. Því verður haldið áfram, en með ítrustu sóttvörnum.
- Verklagsreglur til skoðunar:Einelti, ofbeldi, kynferðisleg og kynbundin áreitni. Lögð fram verklagsregla til endurskoðunar. Stefnt að því á næsta fundi með svæðisfulltrúum.
- Grunur um notkun áfengis og vímuefna
Lagt fram gæðaskjal um verklagsreglu, en þörf er á að ganga endanlega frá skjalinu. Stefnt að því á næsta fundi með svæðisfulltrúum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.