Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 7. desember 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Björn Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Rósa Marinósdóttir kom á teams.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 23. nóvember 2022 og frá 30. nóvember lagðar fram og samþykktar.

 

  1. Rekstaráætlun og fundur með HRN 2.des.

Fjallað um rekstraráætlun næsta árs og fund sem haldin var með ráðuneyti föstudaginn 2. des.  Þar komu fram áætlanir ráðuneytis með auknar fjárveitingar vegna rekstarar þessar árs, eins og þær áætlanir líta út þá gæti árið komið út nálægt heimildum. Umræða var um skiptingu fjárheimilda á milli sviða.

 

  1. Erindi frá deildarstjóra myndgreiningardeildar.

Lagt fram erindi frá deildarstjóra myndgreiningadeildar frá 1. desember 2022.  Þar lætur hún vita af endurnýjunarþörf á ómtæki og CT tæki deildarinnar.  Nefndi að læknar kvarti yfir lélegum myndgæðum núverandi ómtækis miðað við ný tæki og þá hafi CT tækið verið að bila aðeins undanfarið.  Fram kom að HVE er með í CT útboði með fleiri stofnunum á nýju slíku tæki. Nefnir að taka þurfi í reikninginn hugbúnað í slíku tæki sem minnkar truflanir frá gerfiliðum.

Björn skoðar ómtækið með hjartalækni og myndgreiningu.

 

  1. Framkvæmdir í Stykkishólmi

JFJ fjallaði um framkvæmdir í Stykkishólmi. Fram kom að svo virðist sem verklok muni dragast enn frekar.

 

  1. Viðbót við teikningar E-álmu á Akranesi

Fjallað um teikningar og skipulag E-álmu á Akranesi.

 

  1. Mannauðsmál

Umræða var um mannauðsmál.

Rætt var mönnun lækna á svæðinu, m.a. þá slæmu stöðu sem er í mönnun lækna í Ólafsvík, nú hefur verið læknislaust í um 6 vikur.

Vilborg fjallaði um heilsueflandi vinnustað.

ÁÁ kynnti lítilega síðuna heka.is.  Heka tengir saman heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir til afleysinga.

ÞBH opnaði umræðu um læknastofur á Akranesi.

C-deild mönnunarmál.

Innskriftarmiðstöð er farin af stað í E-deild.  Rætt.  Umræða var um verklag og skipulag við innskriftir og fræðslu til sjúklinga.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30   Ásgeir Á. ritaði fundargerð.