Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 8. janúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Þura Björk Hreinsdóttir er í orlofi.
Dagskrá.
Í upphafi fundar minntust fundarmenn Guðmundu Wíum heilbrigðisgagnafræðings í Ólafsvík sem lést þann 2. janúar 2019.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 11. desember 2019 lögð fram og samþykkt.
- Horft um öxl.
JFJ fjallaði um liðið ár.
- Fjármál og rekstur.
Fjallað um fjármál og reksturs síðast liðins árs og núverandi árs.
- Fjármögnun myndgreiningar og sýnarannsókna í heilbrigðiskerfinu.
Lögð fram samantekt um myndgreiningar- og sýnarannsóknir í heilbrigðiskerfinu. Fundur verður haldinn í dag um með ráðuneytinu og fleiri stofnunum.
ÁÁ mun sitja fundinn og er lagt til að leggja áherslur á eftirfarandi þætti:
- Myndgreiningar, sérstaklega sneiðmyndatækið.
- Rannsóknir, endurnýjun samninga m.v. aukningu á þjónustu.
- Framvinda skoðunar á varaafli.
Fjallað um framvindu mála vegna skoðunar á varaafli. Nú liggur fyrir lokaathugun á þörf og búnaði fyrir Akranes, fyrirliggjandi eru tilboð fyrir vél og rafhlöður á skurðdeild, kvennadeild og rannsóknadeild. Þá er jafnframt unnið því að setja upp vél á Hvammstanga. Hólmavík og Stykkishólmur eru tengdir varaafli, að sinni er umræðan um staði sem ekki eru með legudeildir ekki hafin. Stefnt er að því að panta búnaðinn á allra næstu dögum.
- Biðdeild HVE Akranesi
Lögð fram samantekt JFJ frá 2. janúar 2020 um rekstur tímabundinna biðrýma á HVE Akranesi. En vorið 2017 samþykkti framkvæmdastjórn að taka að sér tímabundinn rekstur 15 biðrýma fyrir sjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem biðu eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu.
Upprunalega átti þetta verkefni að standa í tvö ár en var síðan framlengt út árið 2019 og síðan fram í mars 2020. En eins og fram kemur í samantektinni þá reynist nauðsynlegt að loka fyrir innlagnir frá áramótum. Enda er mönnun deildarinnar nú komin niður fyrir viðmið.
- Samantekt um fjölda útkalla sjúkrabíla frá Gísla Björnssyni
Lögð fram samantekt um fjölda útkalla sjúkrabíla frá Gísla Björnssyni deildarstjóra sjúkraflutninga. Akstur bílana nemur 232 þús. km. á síðasta ári.
- Áfallateymi HVE Akranesi – skipunarbréf
Lögð fram skipunarbréf í áfallateymi HVE til næstu tveggja ára, dags. 8. janúar 2012.
Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í nefndina.
- Íris Björg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur heilsugæslu, forsvarsmaður teymisins
- Jóhannes Bergsveinsson, yfirlæknir heilsugæslu
- Jóna Björk Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur lyflækningadeild
- Rún Halldórsdóttir, svæfingalæknir
- Salóme Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur handlækningadeild
- Sigurður Már Sigmarsson, sjúkraflutningsmaður
- Sólberg Fannar Sólbjartsson, tölvumaður
- Sýkingavarnarnefnd HVE- skipunarbréf
Lögð fram skipunarbréf í sýkingarvarnarnefnd HVE til næstu tveggja ára, dags. 8. janúar 2020.
Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í nefndina:
- Guðrún Hróðmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður
- Anna Þóra Þorgilsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Ingi Karl Reynisson, læknir
- Anna Signý Árnadóttir, ræstingastjóri
- Mannauðsmál
10.1 Aðstoðarlæknar.
ÞB sagði að búið væri að skipuleggja ráðningu aðstoðarlækna allt árið 2020 og til og með júní 2021.
10.2 Staða iðjuþjálfa.
Staðan verður auglýst nú í vikunni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.