Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 8. apríl 2020 kl. 13:30 á Akranesi um teams.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura B Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Fundargerð síðasta fundar.

Fundargerð frá 1. apríl lögð fram og samþykkt samhljóða.

  1. Covid–19, staðan í dag.

ÞB fjallaði um fjölda þeirra sem hafa smitast.  Heildarfjöldi á svæði HVE eru nú 70 talsins. Í heild eru 1.586 staðfest smit á landinu,  39 eru á sjúkrahúsi og þar með talið 13 á gjörgæslu, 8 í öndunarvél.  6 hafa látist hér á landi.  Tekin hafa verið 28.991 sýni.  4.407 eru í sóttkví og 559 hafa náð bata.

Vonaði að það færi að bera á stöðuleika og þetta væri í rénun og að fólk myndi haga sér vel um páskana og færi ekki að hópa sig saman í sumarbústöðum eða annars staðar.

Staðan Mánudagur 8.4.2020.
Heilsugæslustöð Sóttkví Greindir
Akranes 50 11
Borgarnes 144 21
Búðardalur 7 0
Grundarfjörður 9 1
Ólafsvík 18 1
Stykkishólmur 4 4
Vesturland samtals 232 38
Hólmavík 0 0
Hvammstangi 20 32
Samtals 252 70

Rætt um sýnatökur nú um helgina, en hægt væri að nýta sér björgunarsveitarbíl frá Hvammstanga sem gæti tekið sýni frá fleiri stöðum.  Umræða var um málefnið.

Lögð fram stöðuskýrsla dags. 7. apríl frá ríkislögreglustjóra almannavarnardeild. Vekur athygli þar að nú er talað um „þessa bylgju faraldursins“.

Umræða var um kostnað vegna Covid-19. En tekin er saman vikulegur kostnaður fyrir heilbrigðisráðuneytið.  Heildar útlagður kostnaður nemur þann 5. apríl 15 m.kr.

Fram kom hjá ÞBH að nú væru um 37 konur sem ættu von á sér næstu 60 daga, en það er vel viðunnandi fjöldi.   C-deildin hefur lokað sig vel af  og fara til hins ítrasta eftir leiðbeiningum Landspítala.  Rólegt er á B-deild núna, en um 11 eru inniliggjandi á A-deild.   Starfsmenn eru rólegri nú og ástandið hefur geinilega slípast til með tímanum.

Umræða var um flutning sjúklings, rætt ítarlega á fundi viðbragðsstjórnar í hádeginu.

En megin reglan er sú að ef sjúklingur er grunaður um smit, þá á viðkomandi að fara á Landspítala eins og staðan er nú, þetta var staðfest í samtali við Runólf Pálsson lækni hjá Landspítala.

Umæða var svo um möguleika og útfærslu ef nauðsynlegt verður að taka á móti covid sjúklingum.  Ef til kemur þá mun verða að taka út A-deild að fullu undir slíkt og sameina A-og B-deild með möguleika á tenginu við F-deild.

  1. Bréf frá formanni SLFÍ

Lagt fram og rætt bréf frá formanni SLFÍ, dags. 3. apríl 2020 þar sem fram kemur beiðni um „önnur laun“ eða viðbótar laun á tímum Covid-19.

  1. Mannauðsmál.

4.1 Sumarafleysingar.

Fjallað um sumarafleysingar og mönnun í afleysingar.   ÞBH fór yfir málefnið, fram kom að ágætlega gengi á flestum stöðum.

4.2       Framkvæmdir á Akranesi og Stykkishólmi.

Rætt um væntanlegar framkvæmdir á legudeildum á Akranesi.  Gert er ráð fyrir að útboð fari í gagnið nú um helgina, þannig að verkið er á áætlun.  Þá er gert ráð fyrir því að framkvæmdir fari af stað í Stykkishólmi á næstunni.

4.3       Veikindi og sóttkví hjá starfsfólki.

Veikindi eru ekki áberandi hjá starfsfólki umfram það sem verið hefur.  Ef starfsmenn fara í „sjálfskipaða“ sóttkví þá skráist það sem orlof eða launalaust leyfi.

4.4 Myndsímtöl.

Búið er að opna fyrir myndsímtöl, en útfæra þarf fyrirkomulagið betur, sérstaklega með tilliti til remote tengingu sögu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:45

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.